Höfundur: Halla Sverrisdóttir

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Ást í óskilum Beth O'Leary Forlagið - JPV útgáfa Izzy og Lucas starfa saman í móttökunni á gömlu heilsuhóteli sem rambar á barmi gjaldþrots. Þau þola ekki hvort annað en þegar kapphlaup hefst milli þeirra um að bjarga vinnustaðnum verður samband þeirra æ flóknara. Rómantísk og fyndin saga með heillandi persónum.
Banvæn snjókorn Sif Sigmarsdóttir Forlagið - Mál og menning Hanna er nýflutt til pabba síns á Íslandi, til að ganga í menntaskóla. Imogen er áhrifavaldur með meira en milljón fylgjendur sem kemur til að halda fyrirlestur um samfélagsmiðla í Hörpu. Þegar leiðir þeirra liggja saman er önnur grunuð um morð, leitin að sannleikanum leggur hina í lífshættu. Æsispennandi ungmennasaga eftir metsöluhöfund.
Skuggaleikur Morðin í Leirvík 2 Anna Bågstam Storytel Original Lísa, besta vinkona rannsóknarfulltrúans Helenu, hverfur við undarlegar aðstæður og allt bendir til þess að henni hafi verið rænt. Helena reynir allt sem hún getur til að hafa upp á vinkonu sinni. Stuttu síðar rekur lík, sem erfiðlega gengur að bera kennsl á, á land í sjávarþorpinu Leirvík. Fljótlega kemur í ljós að ekki er allt með felldu við E...
Vistaskipti Beth O'Leary Forlagið - JPV útgáfa Leena er send í leyfi eftir stórbrotið klúður í vinnunni. Hún heimsækir ömmu sína sem reynist líka standa á tímamótum. Þær ákveða að hafa vistaskipti, amman fer til London og Leena ætlar að lifa rólegu lífi í litlu þorpi. Þar með upphefjast mikil ævintýri.