Höfundur: Hilmar Helgu- og Hilmarsson

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Köngulóin Lars Kepler Forlagið - JPV útgáfa Lars Kepler er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Svíþjóðar en á bak við höfundarnafnið eru hjónin Alexandra og Alexander Ahndoril. Köngulóin var mest selda bókin í Svíþjóð árið 2022 og er sú níunda um finnsk-sænska lögreglumanninn Joona Linna. Hver er þessi raðmorðingi sem kallar sig Köngulóna og hvernig tengist hann Joona?
Þriðja röddin Cilla Börjlind og Rolf Börjlind Forlagið - JPV útgáfa Í Stokkhólmi finnst starfsmaður hjá Tollinum hengdur heima hjá sér. Lögreglan úrskurðar að um sjálfsmorð sé að ræða en þegar Olivia Rönning dregst inn í málið áttar hún sig á að ekki er allt sem sýnist. Og allt í einu er hún, þvert gegn vilja sínum, komin á kaf í morðrannsókn sem teygir anga sína til Frakklands en líka á óvænta staði nær henni.