Höfundur: Martin Widmark

Spæjarastofa Lalla og Maju Dýraráðgátan

Ráðgátubækurnar henta vel fyrir krakka sem vilja æfa lesturinn því letrið er stórt og setningarnar stuttar. Það ríkir neyðarástand í gæludýrabúð Víkurbæjar. Dýrin eru óútskýranlega slöpp en spæjararnir og dýravinirnir Lalli og Maja trúa því varla að einhver sé að eitra fyrir þeim! Ríkulega myndskreytt metsölubók.

Spæjarastofa Lalla og Maju Fótboltaráðgátan

Hörkuspennandi fótboltaleikur Víkurbæjar og Sólbakka stendur sem hæst þegar verðlaunabikarinn hverfur skyndilega. Lögreglustjórinn er sveittur í markinu og á erfitt með að leysa gátuna. Það kemur því í hlut spæjaranna Lalla og Maju að leggja lævísar gildrur fyrir þau grunuðu! Skemmtileg saga með bráðfyndnum litmyndum á hverri opnu.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Spæjarastofa Lalla og Maju Bókasafns­ráðgátan / Saffranráðgátan Martin Widmark Forlagið - Mál og menning Ráðgátubækurnar henta vel fyrir krakka sem vilja æfa lesturinn því letrið er stórt og setningarnar stuttar. Í Bókasafnsráðgátunni er verðmætum bókum stolið af bókasafninu, og í Saffranráðgátunni er jólabaksturinn í Víkurbæ í hættu þegar saffranbirgðir Súperkaupa hverfa sporlaust. Ríkulega myndskreyttar metsölubækur.