Höfundur: Helena Willis

Spæjarastofa Lalla og Maju Kappreiðaráðgátan

Allir krakkar þekkja Ráðgátubækurnar! Sjálfstæðar sögur sem henta vel fyrir spæjara sem vilja æfa lesturinn því að letrið er stórt, setningarnar eru stuttar og það eru skemmtilegar litmyndir á hverri síðu. Einn af öðrum detta hestarnir á kappreiðavelli Víkurbæjar úr leik og Lalli og Maja átta sig fljótt á að það er maðkur í mysunni.

Spæjarastofa Lalla og Maju Spítalaráðgátan

Skartgripir sjúklinganna hverfa ítrekað á spítala bæjarins. Hver er svona útsmoginn og ósvífinn? Stjörnuspæjararnir Lalli og Maja setja á svið fótbrot lögreglustjórans til að koma upp um þjófinn. Bráðfyndin og spennandi ráðgáta með litmyndum á hverri opnu. Ráðgátubækurnar eru frábærar fyrir krakka sem eru að byrja að lesa sjálf.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Spæjarastofa Lalla og Maju Dýraráðgátan Martin Widmark Forlagið - Mál og menning Ráðgátubækurnar henta vel fyrir krakka sem vilja æfa lesturinn því letrið er stórt og setningarnar stuttar. Það ríkir neyðarástand í gæludýrabúð Víkurbæjar. Dýrin eru óútskýranlega slöpp en spæjararnir og dýravinirnir Lalli og Maja trúa því varla að einhver sé að eitra fyrir þeim! Ríkulega myndskreytt metsölubók.
Spæjarastofa Lalla og Maju Fótboltaráðgátan Martin Widmark Forlagið - Mál og menning Hörkuspennandi fótboltaleikur Víkurbæjar og Sólbakka stendur sem hæst þegar verðlaunabikarinn hverfur skyndilega. Lögreglustjórinn er sveittur í markinu og á erfitt með að leysa gátuna. Það kemur því í hlut spæjaranna Lalla og Maju að leggja lævísar gildrur fyrir þau grunuðu! Skemmtileg saga með bráðfyndnum litmyndum á hverri opnu.
Spæjarastofa Lalla og Maju Kappreiðaráðgátan Martin Widmark Forlagið - Mál og menning Allir krakkar þekkja Ráðgátubækurnar! Sjálfstæðar sögur sem henta vel fyrir spæjara sem vilja æfa lesturinn því að letrið er stórt, setningarnar eru stuttar og það eru skemmtilegar litmyndir á hverri síðu. Einn af öðrum detta hestarnir á kappreiðavelli Víkurbæjar úr leik og Lalli og Maja átta sig fljótt á að það er maðkur í mysunni.
Spæjarastofa Lalla og Maju Lærðu að reikna Forlagið - Mál og menning Fjörlegar þrautabækur fyrir fróðleiksfúsa 5–7 ára krakka sem vilja æfa sig að skrifa tölurnar og taka fyrstu skrefin í reikningi með aðstoð Lalla og Maju, spæjaranna frægu úr Ráðgátubókunum. Leystu þrautirnar, teiknaðu, litaðu og límdu límmiða. Bækurnar henta sérlega vel í aftursæti, á stofugólf, eldhúsborð og undir sæng.
Spæjarastofa Lalla og Maju Lærðu að skrifa Forlagið - Mál og menning Fjörlegar þrautabækur fyrir fróðleiksfúsa 5–7 ára krakka sem vilja æfa sig að skrifa stafina og stafsetja einföld orð með aðstoð Lalla og Maju, spæjaranna frægu úr Ráðgátubókunum. Leystu þrautirnar, teiknaðu, litaðu og límdu límmiða. Bækurnar henta sérlega vel í aftursæti, á stofugólf, eldhúsborð og undir sæng.
Spæjarastofa Lalla og Maju Bókasafns­ráðgátan / Saffranráðgátan Martin Widmark Forlagið - Mál og menning Ráðgátubækurnar henta vel fyrir krakka sem vilja æfa lesturinn því letrið er stórt og setningarnar stuttar. Í Bókasafnsráðgátunni er verðmætum bókum stolið af bókasafninu, og í Saffranráðgátunni er jólabaksturinn í Víkurbæ í hættu þegar saffranbirgðir Súperkaupa hverfa sporlaust. Ríkulega myndskreyttar metsölubækur.