Höfundur: Sverrir Jakobsson

Risaeðlugengið Jólagjöfin

Afi Sölva sagtanna sendir fjölskyldunni risavaxna jólagjöf. Á aðfangadag kemur í ljós að bæði pakkinn og pósteðlan eru horfin! Ná Gauti og Sölvi að leysa málið áður en jólin bresta á? Bækurnar um Risaeðlugengið hafa slegið í gegn enda eru þær krúttlegar, fræðandi og fyndnar og henta ungu áhugafólki um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.

Skattland

Valdstjórn á Íslandi 1281-1551

Fjallað er um átakasögu íslenskra stjórnmála frá lögtöku Jónsbókar 1281 til siðbreytingarinnar 1551. Hvernig þróaðist konungsvaldið á Íslandi? Togstreita milli konungs, Alþingis og embættismanna setti mark sitt á tímabilið. Íslendingar héldu fast í forn réttindi og lög, en starf konungsfulltrúa gat verið bæði vandasamt og hættulegt.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Risaeðlugengið Ferðalagið Lars Mæhle Forlagið - Mál og menning Sölvi sagtanni fær Gauta grameðlu með sér í ævintýralegt ferðalag yfir fjöllin háu í norðri og Nanna nashyrningseðla slæst með í för – sem betur fer! Krúttleg, fræðandi og fyndin saga fyrir yngsta áhugafólkið um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.
Risaeðlugengið 4 Fjársjóðsleitin Lars Mæhle Forlagið - Mál og menning Sölvi sagtanni finnur fjársjóðskort og fær Gróu gaddeðlu og Gauta grameðlu með sér í háskalega fjársjóðsleit þar sem dularfullur sjóræningi kemur við sögu. Bækurnar um Risaeðlugengið hafa slegið í gegn enda eru þær krúttlegar, fræðandi og fyndnar og henta ungu áhugafólki um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.
Risaeðlugengið 7 Hrekkjavaka Lars Mæhle Forlagið - Mál og menning Gauti grameðla og Sölvi sagtanni elska hrekkjavöku! Þeir heimsækja Gróu gaddeðlu og Nönnu nashyrningseðlu, og þau fara öll saman að gera grikk eða gott. Bækurnar um Risaeðlugengið hafa slegið í gegn enda eru þær krúttlegar, fræðandi og fyndnar og henta ungu áhugafólki um risaeðlur og önnur forsöguleg dýr.
Risaeðlugengið Leyndarmálið Lars Mæhle Forlagið - Mál og menning Grameðlurnar og sagtannarnir ætla saman í sumarfrí og Nanna nashyrningseðla slæst í hópinn. Þau ætla að heimsækja afa Sölva sem er uppfinningaeðla og býr í helli í fjöllunum í norðri. En þegar þau (loksins) koma á leiðarenda er afi hvergi sjáanlegur. Er eitthvað dularfullt í gangi í hellinum hans afa?