Allar bækur

Síða 37 af 37

Ævintýri fyrir ofurhetjur - Svört jól

Rétt fyrir jólin gerist dálítið undarlegt í Rósahæð. Öll sjónvörp hætta að virka og enginn getur komist að því hvað veldur. Þegar eldri borgararnir fá ekki uppáhaldsþættina sína byrja þau að vera til alls konar vandræða. Þau brjótast inn, skemma og slást! Lísa og vinir hennar verða að komast að því hver stendur á bak við þetta og í hvaða tilgangi.

Ævintýri Krumma Krummi og Kría

1. saga

Frá því að Krummi litli klekst úr egginu á frostköldum vordegi í Rauðhólum er hann sannfærður um að ævintýrin bíði hans. Hann lendir í ýmsum hrakföllum en á alltaf öruggt skjól í faðmi foreldra sinna. Dag einn bjargar hann fuglsunga úr lífsháska og kynnist Kríu sem verður besta vinkona hans. Bókin er einnig fáanleg í enskri þýðingu.

Ævintýri Væb Væb finnur taktinn

Væb-bræður ætla að stofna hljómsveit. Það hefði átt að vera auðvelt en er það alls ekki. Þegar þeir rekast á dularfulla hljóðvél og fara að spila fer allt úr böndum. Áður en þeir vita af eru Litli Væb, Stóri Væb og Monkí komnir inn í heim þar sem tónlist getur vakið öfl sem enginn ræður við. Þeir verða að finna taktinn áður en það verður um seinan.

Örlagasteinarnir

Eftir mikið óveður á Orkneyjum finnst lík Archie Stout. Hann hafði verið myrtur. Morðvopnið finnst skammt frá, steinn með fornum áletrunum. Archie var litríkur persónuleiki og naut vinsælda. Dauði hans er áfall fyrir samfélagið. Lögregluforinginn Jimmy Perez, sem býr nú á Orkneyjum ásamt sambýliskonu sinni og syni, gengur í að leysa morðgátuna.