Þrjár sögur
Þrjár sögur, sem komu fyrst út árið 1877, eru meðal rómuðustu verka franska rithöfundarins Gustaves Flaubert. Sögurnar hverfast um margbreytileika mannlegra tilfinninga og beitir höfundur ólíkum frásagnaraðferðum eftir efni hverrar sögu.
Síða 36 af 37
Þrjár sögur, sem komu fyrst út árið 1877, eru meðal rómuðustu verka franska rithöfundarins Gustaves Flaubert. Sögurnar hverfast um margbreytileika mannlegra tilfinninga og beitir höfundur ólíkum frásagnaraðferðum eftir efni hverrar sögu.
Einstök, hugvitsamleg og vekjandi bók fyrir þá sem unna ljóðlistinni, en ekki síður fyrir hina ýmsu og ólíku lesendur. Einhver sagði að svona bók ætti að vera skyldulesning og sannarlega er mikill fengur í þessum hnyttnu og skemmtilegu myndljóðum sem dregin eru upp af 37 innlendum og erlendum skáldum. Eftirmála ritar Ófeigur Sigurðsson.
Lengi vel var gert ráð fyrir að fólk sem þáði fátækrastyrk væri svipt borgaralegum réttindum, eins og atvinnufrelsi og kosningarétti. Árið 1927 var meirihluti þingmanna orðinn sammála um að þetta væri óréttlátt. Þurfamenn skyldu fá mannréttindi – þó bara þeir sem ættu þau skilið. En hvernig átti að greina milli hinna verðugu og hinna óverðugu?
Sægarpur og skörungur
Þuríður formaður (1777–1863) var einstök kona á sínum tíma. Hún fór ung til sjós og var lengi aflasæll skipstjóri. Hún sótti rétt sinn og annarra fyrir dómstólum og átti stóran þátt í að upplýsa hið alræmda Kambsrán. En þrátt fyrir óvenjulegt hugrekki, ósérhlífni og óbilandi seiglu slapp hún ekki undan hörðum veruleika nítjándu aldar.
Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar sem fjallar um nærveru og fjarveru, minningar og missi, hið hversdagslega og hið óáþreifanlega. Í ljóðunum fléttast saman heimili, fjölskylda og kynslóðir sem mæta sorg, ást og spurningum um það sem lifir áfram þegar einhver hverfur. Kannski hverfur ekkert alveg. Kannski breytir það aðeins um form.
Ísafold gekk í björg sjö ára gömul og dvaldi þar í sólarhring. Hún lifir í dag hæglátu lífi en þegar systir hennar óttast að mamma þeirra sé komin með ósæmilega ungan kærasta, hriktir í stoðum tilverunnar. Listilega fléttuð fjölskyldusaga úr dularfullum samtíma, þar sem sumt fólk fæðist undir berum himni á meðan öðrum er áskapað líf í klettunum.
Bókin Þúsundblómabreiða - Eggert Pétursson er gefin út í tilefni samnefndrar sýningar í Listasafni Íslands og Turku Art Museum í Finnlandi.
smáprósar
Margradda og magnað verk! Vel á annað hundrað smáprósar þar sem birtist fjöldi persóna og alls kyns óvænt atvik eiga sér stað. Ásamt systurbókinni Pensilskrift, sem kom samtímis út haustið 2022, hlaut bókin afar góðar viðtökur og seldist fljótlega upp. Þessi nýja útgáfa er hluti af ritsafni Gyrðis Elíassonar.
Fyrra bindi
Tvö bindi, fjórtánda bók sem að út kemur eftir Jónas Gunnar Einarsson, safn smágreinar, hugleiðingar, örsögur, smásögur, prósaljóð og farið vítt um völl.
Ein æfing á dag, allt árið. Hreyfidagatalið er aðgengilegt, margnota æfingadagatal fyrir eldra fólk með fjölbreyttum æfingum, s.s. fyrir styrk, jafnvægi, úthald og heilaleikfimi með möguleika á aðlögun eftir getu. Samhliða æfingunum fléttast inn mikilvæg fræðsla um vellíðan og andlega heilsu og þannig færist heilsuefling inn á heimilin.
Þegar flestir hugsa um ömmur eru amma Jójó og amma Súsanna ekki þær sem koma upp í hugann. Í litlausum bæ þar sem allir líta eins út, á Addi tvær ægifínar ömmur, sem vekja athygli hvar sem þær fara. Þegar nýtt og dauflegt listagallerí opnar í bænum ákveða ömmurnar að sýna bænum hvernig lifandi list getur verið!
Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn
Vinirnir fjórir eru enn á flakki um víðáttuna. Þau vita ekki enn hverju þau leita að en það sem þau vita er að lífið getur verið erfitt, að þau elska hvort annað og að kaka er oft svarið við spurningum þeirra. Dag nokkurn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir hversu erfitt þetta var, og hversu vel þú stóðst þig.
Í þessari bók kynnumst við 16 fuglategundum af þeim 75-80 sem verpa að staðaldri á Íslandi. Við fræðumst um sögu þeirra, skoðum hvernig þeir líta út og hvað þeir gera dagsdaglega. Fuglarnir skipta miklu máli fyrir náttúruna og okkur. Í lok hvers kafla er að finna ljóð sem börn víðs vegar að af landinu hafa ort um fuglinn sinn.
Allar Narníu bækurnar í einu bindi
Stórkostlegar verur, hetjudáðir, ótrúlegir bardagar í stríði góðs og ills og ógleymanleg ævintýri sameinast í heimi þar sem töfrar og veruleiki mætast og hefur heillað lesendur á öllum aldri í rúm sjötíu og fimm ár. Í þessari nýju útgáfu eru upprunalegu frásögurnar um Narníu samankomnar, allar sjö í einu bindi.
Þriðja bók Guðlaugar Jónsdóttur en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Í huganum árið 2021. Í þessari bráðskemmtilegu sögu segir frá viðburðaríku páskafríi nokkurra barna hjá afa og ömmu á Ísafirði. Bækur Guðlaugar eru kjörnar til samlesturs barna og fullorðinna.
Rétt fyrir jólin gerist dálítið undarlegt í Rósahæð. Öll sjónvörp hætta að virka og enginn getur komist að því hvað veldur. Þegar eldri borgararnir fá ekki uppáhaldsþættina sína byrja þau að vera til alls konar vandræða. Þau brjótast inn, skemma og slást! Lísa og vinir hennar verða að komast að því hver stendur á bak við þetta og í hvaða tilgangi.
Lita- og þrautabók 2
Taktu þátt í Væb-ævintýrinu með því að leysa þrautir og fylla Væb-heiminn af litum og gleði! Lita- og þrautabókin full af skemmtilegum verkefnum fyrir alla Væb-aðdáendur.
Það er ekki alltaf auðvelt að borða matinn sinn! Hjálpaðu Nikó að leggja á borðið og smakka alls konar nýjan mat. Tog- og flipabók. Bók sem eflir hreyfifærni og þroska ungra barna.