Útgefandi: Ugla

Síða 5 af 5

Þegar við vorum Rómverjar

Áleitið sálfræðidrama þar sem hinn níu ára gamli Lawrence, sem býr yfir visku langt umfram aldur, berst fyrir því að halda fjölskyldunni saman þegar öllu sem hann þekkir er snúið á hvolf. Breski rithöfundurinn Matthew Kneale er einnig höfundur verðlaunabókarinnar English Passengers sem talin er ein af 25 bestu skáldsögum þessarar aldar.

Þjóðbúningur verður til

Íslenski þjóðbúningurinn er sprottinn úr þjóðlegum og alþjóðlegum farvegi í senn. Saga hans veitir innsýn í íslenska menningu. Brúðarbúningur með ríkulegu kvensilfri og háum faldi á höfði var glæstasta gerð búningsins. Horfið er á vit fortíðarinnar, m.a. til sumarsins 1809 þegar dýrmætasti faldbúningurinn, sem varðveist hefur, var í sviðsljósinu.

Þuríður formaður

Sægarpur og skörungur

Þuríður formaður (1777–1863) var einstök kona á sínum tíma. Hún fór ung til sjós og var lengi aflasæll skipstjóri. Hún sótti rétt sinn og annarra fyrir dómstólum og átti stóran þátt í að upplýsa hið alræmda Kambsrán. En þrátt fyrir óvenjulegt hugrekki, ósérhlífni og óbilandi seiglu slapp hún ekki undan hörðum veruleika nítjándu aldar.

Örlagasteinarnir

Eftir mikið óveður á Orkneyjum finnst lík Archie Stout. Hann hafði verið myrtur. Morðvopnið finnst skammt frá, steinn með fornum áletrunum. Archie var litríkur persónuleiki og naut vinsælda. Dauði hans er áfall fyrir samfélagið. Lögregluforinginn Jimmy Perez, sem býr nú á Orkneyjum ásamt sambýliskonu sinni og syni, gengur í að leysa morðgátuna.