Þýdd skáldverk

Síða 7 af 7

Þegar við vorum Rómverjar

Áleitið sálfræðidrama þar sem hinn níu ára gamli Lawrence, sem býr yfir visku langt umfram aldur, berst fyrir því að halda fjölskyldunni saman þegar öllu sem hann þekkir er snúið á hvolf. Breski rithöfundurinn Matthew Kneale er einnig höfundur verðlaunabókarinnar English Passengers sem talin er ein af 25 bestu skáldsögum þessarar aldar.

Ætíð minnast

Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn

Vinirnir fjórir eru enn á flakki um víðáttuna. Þau vita ekki enn hverju þau leita að en það sem þau vita er að lífið getur verið erfitt, að þau elska hvort annað og að kaka er oft svarið við spurningum þeirra. Dag nokkurn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir hversu erfitt þetta var, og hversu vel þú stóðst þig.

Örlagasteinarnir

Eftir mikið óveður á Orkneyjum finnst lík Archie Stout. Hann hafði verið myrtur. Morðvopnið finnst skammt frá, steinn með fornum áletrunum. Archie var litríkur persónuleiki og naut vinsælda. Dauði hans er áfall fyrir samfélagið. Lögregluforinginn Jimmy Perez, sem býr nú á Orkneyjum ásamt sambýliskonu sinni og syni, gengur í að leysa morðgátuna.