Allar bækur

Síða 1 af 36

100 prósent

Eru til sænskir raðmorðingjar? Hvers vegna er lík tæmt af blóði? Hvers vegna er annað lík mulið, bein fyrir bein, og það þriðja brennt með ýmsum vökvum? Hversu áreiðanlegar eru DNA-sannanir í raun og veru? Og hvað kom eiginlega fyrir lögreglumanninn Ewert Grens sem skaut sig til að binda enda á allt?

Ritröð Árnastofnunar 123 Agnesarkver

Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse

Í bókinni er fjallað um heilaga Agnesi sem talið er að hafi látið lífið aðeins 13 ára gömul í umfangsmiklum ofsóknum á hendur kristnum mönnum í Róm um 303–304. Hún mun hafa neitað að giftast heiðnum syni háttsetts embættismanns og haldið fast við trú sína og sannfæringu þrátt fyrir hótanir og misþyrmingar.

Innanríkið Alexíus

Faðir höfundar vaknar eina nótt við að ókunnugur maður stendur í svefnherbergisdyrunum á heimili hans við Skólavörðustíg. Aldarfjórðungi síðar rifjar sonurinn upp þessa reynslu föðurins og fer á stefnulaust flakk um fortíð og nútíð. Hér sýnir Bragi Ólafsson á sér nýja hlið; hann beinir athyglinni að því sem ekki er endilega skáldskapur.

Algjör Perla

Þegar Perla rankar við sér á Landspítalanum eftir heilablóðfall snýst hennar fyrsta hugsun aðeins um eitt: Bévað líkið, sem getur ómögulega verið áfram þar sem það er. En hvað getur hálflömuð manneskja á áttræðisaldri gert í slíkri stöðu? Þrjóskan og hugvitið geta sannarlega fleytt konu langt – en svo getur liðsauki líka borist úr óvæntustu átt.

Allt í rugli!

Sigrún er þrettán að verða fjórtán og búin að ákveða að hún sé hætt að vera lúði – sérstaklega nú þegar Aníta er flutt í götuna. En ef hún ætlar að verða vinkona Anítu verður ýmislegt að breytast í lífi hennar. Með hjálp nýju vinkonunnar ræðst hún í verkefnið með ófyrirséðum, og stundum bráðfyndnum, afleiðingum.

Almanak Háskóla Íslands 2027

Auk hefðbundins efnis er fjallað um Veru Rubin stjörnuathugunarstöðina, sem tekin var í notkun sumarið 2025. Stöðin mun bylta sýn okkar og skilningi á alheimi. Þá er í annarri grein fjallað um nálægustu fjarreikistjörnurnar og stuttan pistil að finna um örlög vetrarbrautarinnar og Andrómeduþokunnar. Loks er pistill um halastjörnuna 3I/ATLAS.