Allar bækur

Síða 9 af 25

Hjarta mitt

um mikilvægi hjartastöðvarinnar

Fjallað er um mikilvægi hjartastöðvarinnar og hvernig opnun hennar leiðir til tengingar við innra Sjálfið. Margir halda hjarta sínu lokuðu vegna sársauka og erfiðrar reynslu. Sagt er frá hvernig unnið er að opnun hjartans, sem færir okkur inn í heim kærleika, visku, góðvildar, fegurðar og friðar. Bókin o.fl. bækur höfundar fást á www.avalon.is

Hnúfa og skrúfa

Snigilinn Skrúfu dreymir um að yfirgefa litla skerið sitt og skoða heiminn. Eina nóttina rætist óskin: Risastór hvalur kemur syndandi og býður henni far á sporði sínum. Og þá hefst ógleymanleg ævintýraferð, uppfull af undrum og hættum. Sjöunda bókin sem kemur út á íslensku eftir bresku metsöluhöfundana Juliu Donaldson og Axel Scheffler.

Hobbitinn

Viðhafnarútgáfa

Sérstök viðhafnarútgáfa eins af turnum bókmenntasögunnar er nú fáanleg hjá Kveri bókaútgáfu, en fyrsta útgáfa seldist upp fyrir síðustu jól (’25). Sérlega glæsileg útgáfa og tilvalin gjöf. Þýðing Solveigar Sifjar Hreiðarsdóttur með ljóðaþýðingum Braga Valdimars Skúlasonar hefur hlotið einstaklega lofsamlegar viðtökur.

Létt og loftsteikt í Air Fryer Hollir réttir á hálftíma

Hér heldur metsöluhöfundurinn og samfélagsmiðlastjarnan, Nathan Anthony, áfram að kenna heimiliskokkum að nota lofsteikingarpottinn til að reiða fram girnilegan heimilismat án fyrirhafnar og á örskömmum tíma, en allar uppskriftirnar í bókinni miða við hálftíma eða minna. Hollar og seðjandi uppskriftir gerðar til að spara tíma og fyrirhöfn.

Hótel Héðinsfjörður

Vinkvennahópur er mættur á gönguskíðanámskeið á glænýtt lúxushótel í Héðinsfirði, þar sem annars enginn býr. Hótelið er í eigu einnar úr hópnum, hinnar dularfullu Herdísar Karlsdóttur, uppgangskonu sem hefur auðgast mjög í tæknigeiranum.Fljótlega kemur á daginn að gamlar væringar krauma enn undir og á þriðja degi finnst ein úr hópnum myrt.

Una og Ormur #2 Hreiður, egg og æðardúnn

Una og Ormur eru í næturgistingu hjá ömmu og afa og fá að sofa með góðu sængina hennar ömmu. En af hverju er sængin hennar svona dásamleg? Er hún kannski troðfull af silkimjúkum skýjum? Hreiður, egg og æðardúnn rekur á fjörugan og myndríkan hátt ferðalag æðardúnsins frá hreiðrunum í æðarvarpinu til sængurinnar og svefnpokans.

Sería Sögufélags Hringvegurinn - 1974

Árið 1974 var hringvegurinn um Ísland opnaður með vígslu Skeiðarárbrúar, vegur sem áður hafði varla verið til í villtustu draumum landsmanna. Bókin fjallar um opnun hringvegarins í samhengi við íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó. Hvaða þýðingu höfðu greiðari samgöngur fyrir byggðina í þessu hrjóstruga landi og samband manns og náttúru?

Huldukonan

Konurnar í Lohr fjölskyldunni skilja ekki að Sigvaldi þeirra, með alla sína augljósu mannkosti, hafi aldrei gengið út. Ennfremur fá þær ekki skilið þá fráleitu ákvörðun hans að gerast einsetumaður í eyðivík. Dag einn birtist Sigvaldi á dyraþrepi móður sinnar með mánaðargamla stúlku í fanginu og neitar að svara því hver sé móðir barnsins.