Allar bækur

Síða 13 af 25

Svipmyndir úr 100 ára sögu Landhelgisgæsla Íslands 1926-2026

Landhelgisgæsla Íslands hefur staðið vaktina í 100 ár. Hún nýtur mikils velvilja landsmanna og meira trausts en aðrar íslenskar stofnanir. Í þessari bók er tæpt á því helsta sem við hefur borið hjá Landhelgisgæslunni, björgunarstörfum, átökum á miðunum og mörgu öðru. Magnaðar myndir prýða bókina.

Lára fer á skauta

Lára fær mömmu með sér á skautasvell að prófa skauta. Mest langar Láru að hraðsnúast á svellinu í glitrandi kjól en það kemur í ljós að það er ýmislegt sem þarf að læra áður en hún nær slíkri færni. Hversdagssögur Birgittu Haukdal um Láru og bangsann Ljónsa hafa verið metsölubækur í fjölda ára og vinsæl leiksýning verið gerð eftir þeim.

Leiðin heim

Einn fallegan vordag í París rennur það upp fyrir Malín að hún getur ekki lengur falið sig á bak við að vera tuttugu og eitthvað, enn að finna sig, enn með tímann með sér í liði. Á yfirborðinu virðist líf hennar fullkomið. Ástin örugg. Framtíðin skipulögð. Fótboltastelpan úr Árbænum er komin á stað sem hana hefði aldrei getað dreymt um.

Smit Leikurinn

Elías getur varla slitið sig frá nýja tölvuleiknum sínum. Hann gerist á eyðilegum bóndabæ og gengur út á að forða sér frá brjáluðum kanínum sem virðast hafa stökkbreyst eða smitast af hræðilegum sjúkdómi. Eitt kvöldið uppgötvar Elías að bóndabærinn er til í alvörunni. Og það sem meira er, það er eitthvað mikið að kanínunum þar líka.

Leyndardómur bláu lestarinnar

Belgíski rannsóknarlögreglumaðurinn Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu, Le Train Bleu. Í lestinni hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns.

Leyndarmál Helenu

Tuttugu og fjögur ár eru síðan Helena eyddi sumri á Kýpur og varð ástfangin í fyrsta skipti. Hún snýr aftur með fjölskyldu sinni þegar hún erfir húsið Pandóru. Helena veit að húsið geymir leyndarmál sem hún hefur haldið frá eiginmanni sínum og syni. Þegar hún hittir óvænt gamla kærastann hefst atburðarás sem gæti haft óafturkræfar afleiðingar.

Litaævintýri Siggu og Dóra

Heillandi og ríkulega myndskreytt saga í bundnu máli sem fylgir systkinunum Siggu og Dóra í gegnum litríkan dag. Ellefu litir ramma inn söguna þar sem hver kafli stendur sem sjálfstætt ljóð, tileinkað einum lit og þeirri stemningu og tilfinningu sem hann ber með sér. Fyrir börn á öllum aldri sem elska rím, hrynjandi og fallega liti.

Litlar konur

Ný útgáfa

Litlar konur (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma. Bókin segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu. Tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur.

Litla tehúsið í Tókýó

Fyrir ferðabloggarann Fionu hefur Japan alltaf verið efst á óskalistanum. Þegar hún vinnur ferð þangað, þar sem allt er innifalið, virðist sem draumur hennar sé loks að rætast. En þegar hún kemur til hinnar líflegu og iðandi Tókýó stendur hún óvænt augliti til auglitis við manninn sem hún hélt að væri ást lífsins, ljósmyndarann glæsilega, Gabe.

Litli prinsinn

Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry er ein dáðasta bók sem hefur komið út og hefur verið þýdd á ótal mörg tungumál. Árið 2008 lagði Joann Sfar í samráði við rétthafa í það vandaverk að endurskapa þetta frábæra lærdómsríka ævintýri í myndasöguform með sínum sérstaka stíl og gefa því nýjan blæ.