Allar bækur

Síða 18 af 37

Landamæralaus

Yfirgefin bifreið við vegkant hverfur hægt sjónum eftir því sem fannfergið eykst. Inni í bílnum er svar við flókinni morðgátu sem lögreglunni hefur ekki tekist að leysa. Wisting lögregluforingi fær ábendingar sem vekja áhuga hans á málinu og í kjölfarið vísbendingar sem reynast margar og óljóst hvert þær kunna að leiða.

Lára fer á skauta

Lára fær mömmu með sér á skautasvell til að prófa að skauta. Mest langar Láru að hraðsnúast á svellinu í glitrandi kjól en það kemur í ljós að það er ýmislegt sem þarf að læra áður en hún nær slíkri færni. Hversdagssögur Birgittu Haukdal um Láru og bangsann Ljónsa hafa verið metsölubækur í fjölda ára og vinsæl leiksýning verið gerð eftir þeim.

Leiðarvísir hótelstjóra að morði

Ekki er allt gull sem glóir! Gestirnir hafa ekki hugmynd um hvað gerist bak við tjöldin á einu fínasta hóteli Reykjavíkur. Hvers vegna kemur til dæmis heimilislaust fólk að hótelinu á köldum vetrarnóttum meðan gestirnir eru í fastasvefni? Bráðskemmtileg og spennandi glæpasaga eftir nýjan íslenskan höfund.

Leiðin heim

Einn fallegan vordag í París rennur það upp fyrir Malín að hún getur ekki lengur falið sig á bak við að vera tuttugu og eitthvað, enn að finna sig. Á yfirborðinu virðist líf hennar fullkomið. Fótboltastelpan úr Árbænum er komin á stað sem hana hefði aldrei getað dreymt um. En er lífið sem hún hefur valið sér raunverulega hennar?

Leigubílstjóri deyr

Leigubíll finnst skaðbrunninn við Reynisvatn í Reykjavík. Í honum eru líkamsleifar manns sem lögregla finnur strax út að hafi verið ráðinn bani áður en kveikt var í. Hlöðver Hlöðversson rannsakandi er settur í málið, sem leiðir að gömlu mannshvarfsmáli og að hópi vafasamra einstaklinga sem tengdust nektardansstöðunum um síðustu aldamót.

Lesbíur óskast

Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu. Hún kann ekki að elda, íbúðin er í rúst, hún efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu og svo kann hún ekki að tala við lesbíur.

Lesið með Lubba Lubbi á Árbæjarsafni & Lubbi og Púki prakkari

Stuttar og litríkar lestrarbækur um Lubba eftir höfunda bókarinnar Lubbi finnur málbein. Lubbi lendir í ævintýrum og á hverri síðu eru hljóðin sýnileg og táknrænar hreyfingar þeirra sömuleiðis. Þannig verður lesturinn skemmtilegur og gagnlegur en táknrænu hreyfingarnar mynda brú á milli málhljóða og bókstafa.