Allar bækur

Síða 21 af 37

Mama Anna

Íslenska konan með Afríkuþráhyggjuna

Höfundur lýsir reynsluheimi sínum af margra ára tengslum við Tansaníu. Nándin við fátæktina hafði sterk áhrif á höfund sem vildi leggja eitthvað af mörkum. Í tæp 14 ár tengdist hún þorpi í Norður-Tansaníu, byggði upp ferðaþjónustu og grænmetis- og ávaxtarækt, stofnaði Women Power, félag til valdeflingar kvenna og setti á stofn leikskóla.

Mara

Tvö ungmenni fara niður um ís á stöðuvatni. Í ljós kemur að fleiri voveiflegir atburðir hafa átt sér stað við vatnið. Og þeir sem hafa kafað í því þjást af martröðum … Hér fá rómaðir hæfileikar Yrsu Sigurðardóttur til að kveikja spennu og magna upp dulúð að njóta sín til hins ýtrasta.

Maríuklefinn

Bréfaritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangans á framandi slóðum.

Með sögu í farangrinum – Brúðarbúningurinn:

Níu fræðigreinar

Greinarsafn í tilefni sýningar í Þjóðminjasafni Íslands um glæsilegan íslenskan brúðarbúning frá 18. öld sem þekktur er fyrir glæsileika, fagurt handverk og skart. Faldbúningurinn er í eigu V&A safnsins í London og var lengi talinn hafa glatast í skipsskaða.

Meira sokkaprjón

Fjölbreytt og eiguleg prjónabók með 74 uppskriftum að einlitum og marglitum sokkum fyrir stóra og smáa fætur. Uppskriftirnar eru einfaldar og aðgengilegar og fremst í bókinni eru útskýringar á aðferðum. Þetta er áttunda bók höfundar en fyrri bækurnar hafa notið mikilla vinsælda, þar á meðal Sokkaprjón, Vettlingaprjón og Húfuprjón.