Allar bækur

Síða 19 af 37

Leyndardómur bláu lestarinnar

Hercule Poirot er á leið til frönsku Rívíerunnar. Hann hugsar sér gott til glóðarinnar að hvílast og njóta lífsins um borð í lúxuslestinni bláu. Þar hittir hann fyrir dóttur þekkts bandarísks auðmanns, Ruth Kettering. Hún er á leið til fyrrverandi elskhuga síns. Morguninn eftir finnst hún myrt og dýrmætir skartgripir hennar eru horfnir.

Leyndarmál Helenu

Tuttugu og fjögur ár eru síðan Helena eyddi sumri á Kýpur og varð ástfangin í fyrsta skipti. Hún snýr aftur með fjölskyldu sinni þegar hún erfir húsið Pandóru. Helena veit að húsið geymir leyndarmál sem hún hefur haldið frá eiginmanni sínum og syni. Þegar hún hittir óvænt gamla kærastann, hefst atburðarás sem gæti haft óafturkræfar afleiðingar.

Létt og loftsteikt í Air Fryer Hollir réttir á hálftíma

Hér heldur metsöluhöfundurinn og samfélagsmiðlastjarnan Nathan Anthony áfram að kenna heimiliskokkum að nota lofsteikingarpottinn til að reiða fram girnilegan heimilismat án fyrirhafnar og á örskömmum tíma, en allar uppskriftirnar í bókinni miða við hálftíma eða minna. Hollar og seðjandi uppskriftir gerðar til að spara tíma og fyrirhöfn.

Litaævintýri Siggu og Dóra

Heillandi og ríkulega myndskreytt saga í bundnu máli sem fylgir systkinunum Siggu og Dóra í gegnum litríkan dag. Ellefu litir ramma inn söguna þar sem hver kafli stendur sem sjálfstætt ljóð, tileinkað einum lit og þeirri stemningu og tilfinningu sem hann ber með sér. Fyrir börn á öllum aldri sem elska rím, hrynjandi og fallega liti.

Litla tehúsið í Tókýó

Fyrir Fionu hefur Japan alltaf verið efst á óskalistanum. Þegar hún vinnur ferð þangað, þar sem allt er innifalið, virðist sem draumur hennar sé loks að rætast. En þegar hún kemur til hinnar líflegu og iðandi Tókýó stendur hún óvænt augliti til auglitis við manninn sem hún hélt eitt sinn að væri ást lífs hennar, ljósmyndarann glæsilega, Gabe.

Litli prinsinn

Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry er ein dáðasta bók sem hefur komið út og hefur verið þýdd á ótal mörg tungumál. Árið 2008 lagði Joann Sfar í samráði við rétthafa í það vandaverk að endurskapa þetta frábæra lærdómsríka ævintýri í myndasöguform með sínum sérstaka stíl og gefa því nýjan blæ.