Allar bækur

Síða 20 af 37

Líf í bókum

Íslenskar bókmenntir í þúsund ár

Saga íslenskra bókmennta frá upphafi til okkar daga, þúsund ára ævintýraleg atburðarás fjörlega rakin af Halldóri Guðmundssyni. Um leið og hann segir frá meginþráðum bókmenntasögunnar, fjölda höfunda og verka, allt frá fornritum til innflytjendabókmennta, leggur hann mat á mörg verkanna og bregður upp svipmyndum af skáldum og starfi útgefanda.

Lífskán

Ljóðsaga um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Í ljóðunum fléttast mannleg samskipti og skynjun saman við náttúruna í sterku og oft ærslafullu myndmáli. „Ljóðrænt ferðalag um mátt tungumálsins til að takast á við mótlæti, halda reisn og skilja undur hins mannlega,“ segir dómnefnd Nýræktarstyrks.

Líknarinn

Morðin í Åre 5

Margverðlaunuð glæpasería. Dularfull andlát meðal aldraðra á Åre-svæðinu, sænsku Ölpunum, vekja grunsemdir lögreglukonunnar Hönnu Ahlander um að ekki sé allt með felldu. Sívaxandi togstreita í sambandi hennar og Daniels Lindskog, nánasta samstarfsmanns hennar, gerir þeim hins vegar erfitt að einbeita sér að fullu að rannsókn málsins.

Lína fer í eltingaleik við lögregluþjóna

Þegar fólkið í bænum áttar sig á því að á Sjónarhóli búi níu ára stelpa alein eru tveir lögregluþjónar sendir að sækja hana og flytja á barnaheimili. Lína hefur þó engan áhuga á því, enda má þar hvorki vera með hest né apa. Þegar lögregluþjónarnir reyna að handsama Línu snýr hún sig úr greipum þeirra og býður þeim í staðinn í æsilegan eltingaleik!

Ljóðasafn

Heildarsafn ljóða Njarðar P. Njarðvík. „Lesendum er hér með boðið að stíga inn í ljóðheim „í faðmi tungunnar“ þar sem andartakið og eilífðin mætast í orði sem lýsir, talar til okkar með þögninni og leiðir okkur nær kjarna tilverunnar,“ skrifar Ólína Þorvarðardóttir prófessor meðal annars í inngangi að ljóðasafninu.

Ljósfaðir

Jónas í Hróarsdal í Skagafirði var bóndi og yfirsetumaður, sem hafði auk þess formlegt leyfi til lækninga. Til hans lá straumur sjúkra, lemstraðra og þunglyndra. Viðkvæmu jafnvægi á heimilinu er raskað þegar barnabarn úr Vesturheimi ber að garði. Áhrifamikil, söguleg skáldsaga.

Ljúflingar Prjónað úr sögum eftir Astrid Lindgren

Falleg prjónabók með flíkum í anda helstu sögupersóna úr bókum Astridar Lindgren. Hér eru 46 uppskriftir fyrir börn og fullorðna. Hvern dreymir ekki um derhúfuna og peysurnar hans Emils eða Kattholtskjólinn og svuntuna hennar Ídu? Línupeysa fyrir stóra og smáa, prjónaður herra Níels og peysur bræðranna Ljónshjarta svo fátt eitt sé nefnt.

Loki. Leiðarvísir fyrir prakkara: Hvernig skapa skal kaos

Sprenghlægileg bók um æsi og þursa sem eru komnir hingað til okkar í Miðgarð í líki „venjulegrar“ fjölskyldu. Í þetta sinn verður mikið kaos og hver á að bjarga málunum? Ríkulega myndlýst bók í anda dagbóka sem gerir hana þægilega aflestrar fyrir sjálfstæða lesendur. Lestraraldur 8-12 ára. Fimmta bókin í frábæru ritröðinni um Loka.

Longships and Sod Houses

A Thousand-Year Journey from Viking Iceland to the Dakota Plains

Gary Goodman heyrði fyrst á ættarmóti að forfaðir hans í 24. lið hefði verið skáldið og vígamaðurinn Egill Skallagrímsson. Þessi uppgötvun varð honum hvatning til að komast að því hvaða leið forfeður hans höfðu farið frá Íslandi miðalda til sléttanna í Norður-Dakóta á síðari hluta 19. aldar.

Lubbi verkefnabók 2

Litrík og skemmtileg verkefnabók með Lubba. Fjölmörg verkefni sem auka færni í að meðtaka tengsl málhljóða og bókstafa. Þannig er hægt að leggja grunn að lestrarnámi og læra að skrifa eftir fyrirmynd. Fjöldi forvitnilegra orða og margs konar verkefni stuðla að auknum orðaforða sem styrkir lesskilning og auðugt málfar.

Lykilorð 2027

Orð Guðs fyrir hvern dag

Í bókinni eru biblíuvers fyrir hvern dag ársins auk ljóðaerindis eða fleygs orðs. Uppbygging hennar og innihald býður upp á fjölbreytta notkun fyrir þá sem vilja leyfa innblásnum textum að vekja sig til umhugsunar. Auk þess að vera gefin út á kilju og rafbókarformi eru Lykilorð lesin í hljóðvarpi og birtast að hluta til á helstu samféla...