Allar bækur

Síða 14 af 38

Hauststormur

Kvöldið sem Ágúst Strindberg flytur í lítinn bæ á vesturströnd Svíþjóðar skellur á mikill stormur og vinsæll grunnskólakennari í bænum hverfur sporlaust. Hvað kom fyrir Agnesi? Hvernig tengist hvarfið húsinu þar sem Ágúst býr? Ný glæpasagnasería frá einum vinsælasta spennusagnahöfundi Svíþjóðar. Æsispennandi atburðarás og óvæntar vendingar.

Hefnd Diddu Morthens

Starfsferill Diddu Morthens er að engu orðinn, börnin löngu farin að heiman og eiginmaðurinn er úrvinda öll kvöld. Hún hangir í tölvunni til að drepa tímann og dag einn býr hún til gervimenni á netinu til að hefna sín á gamalli bekkjarsystur. Sprenghlægileg saga sem fékk fyrstu verðlaun í handritasamkeppni Forlagsins.

Skuggabrúin Heiðmyrkur

Í Heiðmyrkri lýkur Ingi Markússon sögunni sem hófst með Skuggabrúnni og hélt áfram í Svikabirtu, bókum sem vakið hafa verðskuldaða athygli og lof. Heiðmyrkur bindur þríleikinn saman í myrkri frásögn á mörkum fantasíu og vísindaskáldskapar - sögu um vináttuna og hefndina; lífið og eilífðina; vitundina og vélina...

Heklað á minnstu börnin

Fjölbreyttar og fallegar uppskriftir að hekluðum flíkum fyrir börn á aldrinum 0–24 mánaða. Í bókinni eru einnig uppskriftir að ýmsu öðru fyrir barnið og barnaherbergið. Flíkurnar eru einfaldar og látlausar og áhersla er lögð á sem minnstan frágang. Hér geta bæði byrjendur í hekli og reyndir heklarar fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hera og Gullbrá

Sönn saga

Saga Margrét er hrædd við hunda og verður því heldur hissa á fjölskyldu sinni sem ákveður að ættleiða hundinn Heru. Fyrr en varir verða þær þó perluvinkonur enda er Hera svo góð við allt og alla. Meira að segja við pínulitla gæsarungann Gullbrá! Sagan af Heru og Gullbrá er sönn og hugljúf og segir frá óvæntri og fallegri vináttu.

Hetjurnar á HM 2026

Bestu leikmenn heims undirbúa sig fyrir stærsta sviðið! HM karla 2026 verður stærra og glæsilegra en nokkru sinni fyrr. Hundruð frábærra fótboltamanna munu leggja sig alla fram fyrir land sitt og þjóð – en hverjir munu skara fram úr? Verður Haaland markakóngur? Verður Mbappé besti maður mótsins? Verður Lamine Yamal alheimsstjarna? Verður Messi með?

Hin helga kvöl

Hin helga kvöl er þrettánda bókin um rannsóknarlögreglumanninn sérlundaða Hörð Grímsson, sem hefur fyrir löngu skipað sér í hóp allra vinsælustu skáldsagnapersóna samtímans. „Snilldar flétta. Besta bókin hingað til. 100% Stefán Máni“ – Árni Matthíasson, menningarblaðamaður.

Hinir ósýnilegu

Í fríi í Danmörku hittir blaðamaðurinn Nora Sand þekktan lögmann sem hún hefur lengi viljað taka viðtal við. Daginn eftir finnst maðurinn myrtur. Þegar Nora fer að grafast fyrir um ástæður morðsins kemur í ljós að lögmaðurinn stýrði rannsókn á víðtæku barnaníðsmáli í Bretlandi þar sem grunur leikur á að háttsett fólk hafi komið við sögu.

Hitt nafnið

Sjöleikurinn I-II

Fyrsta bókin af þremur í stórvirki Nóbelshöfundarins, svonefndum Sjöleik. Seiðandi og stórbrotin saga um listina, um Guð, um alkóhólisma, vináttuna og framrás tímans. Hún fjallar um dauðann, en líka um þýðingu þess að vera á lífi, um hlýjuna frá hundi, gleðina við að keyra í snjó og bragðið af spældum eggjum og steiktu fleski.