Allar bækur

Síða 15 af 25

Maríuklefinn

Bréfaritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangans á framandi slóðum.

Meira sokkaprjón

Fjölbreytt og eiguleg prjónabók með 74 uppskriftum að einlitum og marglitum sokkum fyrir stóra og smáa fætur. Uppskriftirnar eru einfaldar og aðgengilegar og fremst í bókinni eru útskýringar á aðferðum. Þetta er áttunda bók höfundar og hafa fyrri bækur notið mikilla vinsælda, þar á meðal eru Sokkaprjón, Vettlingaprjón og Húfuprjón

Mið-Austurlönd

Fortíð, nútíð og framtíð – uppfærð útgáfa

Áleitnar hörmungarfréttir frá Mið-Austurlöndum berast okkur nær daglega og margt sem þar er sagt á rætur í afskiptum Vesturlanda. Yfirlitsrit þar sem fjallað er um helstu atburði í heimshlutanum af fordómaleysi og þekkingu er nauðsyn til skilnings á samtíma okkar. Hér er komin ný og uppfærð útgáfa þessa yfirgripsmikla og aðgengilega rits.

Morðingi, vona ég

Morðingi, vona ég gerist í nútíma Helsinki. Ung móðir er myrt í neðanjarðarlest um hábjartan dag á leið heim til fjölskyldu sinnar. Morðið er tilefnislaust og eftir situr faðir móðurlauss sonar agndofa af sorg og heift. Fimm árum síðar eru morðingjarnir lausir úr fangelsi og faðirinn hefur samband við gamlan vin sinn til að skipuleggja hefnd.