Allar bækur

Síða 32 af 37

Bardagakettir Upphaf spádómsins

1. hluti

Heimiliskötturinn Rósi þiggur boð um að verða hluti af gengi villikatta og læra að verða bardagaköttur. Hann fær nýtt nafn, lærir nýja siði og kynnist nýjum vinum. Hann eignast líka óvini og kemst að því að sumir kettir eru ekki hrifnir af því að heimilisköttur fái að verða bardagaköttur. Mun þessi hugrakki og hjartahreini köttur lenda á loppunum?

Uppreisn skordýranna

Kata könguló, Gummi geitungur, Flosi fiðrildi, Margeir maur og öll skordýrin vinir þeirra eru orðin þreytt á því hvað mennirnir eru grimmir og tillitslausir. Þeir kremja skordýrin og kasta í klósett, ryksuga og sprauta á þau eitri. Loks ákveða skordýrin að gera uppreisn og flytja til Surtseyjar. Hvað skyldi þá verða um mannfólkið?

Út með færið

Á veiðum með Gylfa Pálssyni

Hér er á ferðinni ómissandi bók fyrir allt veiðifólk. Gylfi Pálsson hefur skrifað ótal pistla um allar hliðar stangveiðinnar. Hér skrifar hann um silungsveiði, laxveiði, vatnaveiði, veiði í ám og veiði úr fjöru! Hann skoðar einnig umhverfi veiðimannsins, bæði náttúruna og umgjörðina. Sögurnar eru bæði fróðlegar, spennandi og stórskemmtilegar.

Úrval smásagna

Bókin inniheldur á fjórða tug smásagna Þórarins sem Kristján Þórður Hrafnsson hefur valið úr fyrri sagnasöfnum hans, átta talsins. Meðal sagnanna eru ýmsar sem telja má klassískar, svo sem Síðasta rannsóknaræfingin, Tilbury, Orðanna hljóðan og Íþróttabyltingin.

Vakir þú?

Skelfileg tíðindi reka elskendur af stað í eitt afdrifaríkasta ferðalag veraldarsögunnar. Öldum síðar bíður maður í Vesturbænum eftir pípara. Hann er ásóttur af hugsunum og finnur að eitthvað er í vændum. Samtímaverk byggt á ævi frægustu persónu sögunnar, uppgjör við guð, menn og það fegursta og versta í okkur sjálfum.

Vargöld

Þriðja bók

Metnaðarfull myndasaga um goð og menn á heiðnum tíma sem hefur bæði hlotið lof lesenda og tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Þetta er lokakafli sögunnar. Vikar á óvænta endurfundi við ástina en Óðinn vill ekki leysa hann úr þjónustu sinni. Einnig fáanleg á ensku.

Varhugavert vor

Morð og ráðgátur frá drottningu glæpasagnanna

Með vorinu hækkar sól á lofti, gróðurinn tekur við sér og lífsgleðin eykst í hjörtum mannanna. En illskan er þó aldrei langt undan. Rétt eins og á öðrum árstímum takast Hercule Poirot, ungfrú Marple, Tommy og Tuppence og margar aðrar ógleymanlegar sögupersónur Agöthu Christie á við ískyggilegt ráðabrugg og háskalega glæpi.

Varkár

Varkár er verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin. Hún sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.