Allar bækur

Síða 25 af 25

Æfing dagsins - hreyfidagatal

Ein æfing á dag, allt árið. Hreyfidagatalið er aðgengilegt, margnota æfingadagatal fyrir eldra fólk með fjölbreyttum æfingum, s.s. fyrir styrk, jafnvægi, úthald og heilaleikfimi með möguleika á aðlögun eftir getu. Samhliða æfingunum fléttast inn mikilvæg fræðsla um vellíðan og andlega heilsu og þannig færist heilsuefling inn á heimilin.

Ætíð minnast

Strákurinn, moldvarpan, refurinn, hesturinn og stormurinn

Vinirnir fjórir eru enn á flakki um víðáttuna. Þau vita ekki enn hverju þau leita að en það sem þau vita er að lífið getur verið erfitt, að þau elska hvort annað og að kaka er oft svarið við spurningum þeirra. Dag nokkurn munt þú líta til baka og gera þér grein fyrir hversu erfitt þetta var, og hversu vel þú stóðst þig.

Örlagapenninn

Árásin á bókasafnið

Fyrsta örlagaævintýrið í nýjum LEGO® Ninjago bókaflokki. Dexi hefur svikið lit og stolið ævagömlum fjaðurpenna af bókasafninu. Efrasía og Kai verða að stöðva hann. En þetta er ekki bara einhver fjaðurpenni, heldur sjálfur örlagapenninn. Lestu söguna og byggðu úr kubbunum. LEGO® NINJAGO® kall og vélmenni fylgja með!

Örlagasteinarnir

Eftir mikið óveður á Orkneyjum finnst lík Archie Stout. Hann hafði verið myrtur. Morðvopnið finnst skammt frá, steinn með fornum áletrunum. Archie var litríkur persónuleiki og naut vinsælda. Dauði hans er áfall fyrir samfélagið. Lögregluforinginn Jimmy Perez býr nú á Orkneyjum ásamt sambýliskonu sinni og syni.