Allar bækur

Síða 23 af 25

Veisla þrjú

LínLín bjargast úr bráðum háska og er komin á byrjunarreit á ný. Hvað hefur hún að lifa fyrir þegar flestallt sem hún hefur elskað er gengið henni úr greipum? Sjálfri sér til furðu finnur hún ólga innra með sér heitar tilfinningar; lífsþorsta, tilhlökkun, hrifningu. Funandi ástarsaga meistarahöfundar um rómantískt æði konu sem tókst ekki að deyja.

Veraldarvafstur

Hér er sögð saga af farsælum ferli Sveins B. Valfells í viðskiptum en líka sagt frá manninum sjálfum og fjölskyldu. Sagan heldur áfram af syni hans, Sveini Valfells yngri, og saman fléttast sögur tveggja kynslóða en bókin er um leið aldarspegill sem varpar ljósi á ótrúlegar þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa á Íslandi frá upphafi tuttugustu aldar

Vetrarbókin

Í gegnum myrkrið með goðum og vættum

Fróðleg og óvenjuleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Vilborg Davíðsdóttir rýnir hér í sagnaheim fyrri alda, þjóðtrú og þjóðhætti, í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum, keltneskum og norrænum, að gagni í glímunni við langan og strangan íslenskan vetur. Um leið spinnur hún þræði til nútímans í ævintýraferð gegnum myrkrið.

Vinir til bjargar

Kanínukraðak

Fyrsta krúttlega dýraævintýrið í nýjum LEGO® Friends bókaflokki. Nóva og vinir hennar eru í vandræðum. Bærinn þeirra er yfirfullur af kanínum! Nóva er viss um að nýjasta uppfinningin hennar, gæludýrastöðin, geti bjargað málunum. Lestu söguna og byggðu úr kubbunum. LEGO Friends-kall og gæludýrastöð fylgja með.