Allar bækur

Síða 24 af 37

Næsta stríð

Fjölbreytt ljóð sem eru flest samin á síðasta áratug ævi Ásgeirs. Á þessum tíma dvaldi hann að stórum hluta í Prag í Tékklandi og ljóðin litast mörg af því. COVID tímabílið – eða Kófið (eins og Ásgeir kallar það) – fær líka sinn sess. Pokadýr, skúringakonur, kettir og körfuboltavellir eru meðal þess sem ber á góma. Átök og húmor í bland.

Og svo varð ég forsetafrú

Höfundur rifjar upp eftirminnilegan tíma sem forsetafrú Íslands og veitir lesendum innsýn í heim þar sem formlegheitin ráða ríkjum og opinberar heimsóknir og móttökur eru stór hluti af starfinu. Einnig segir Eliza frá uppvexti sínum í Kanada, námsárunum, ferðalögum og hvernig það var að flytja til Íslands og verða útivinnandi margra barna móðir.

Orðasafn í leiklist

Í Orðasafni í leiklist er að finna þann orðaforða sem leikarar, sviðslistamenn, leikstjórar, sviðsmenn, leikmyndahönnuðir og búningahönnuðir nota í störfum sínum í tengslum við leiklist og leikhús og að auki leiklistarkennarar í störfum sínum. Orðin eru skilgreind og jafnframt fylgja enskar þýðingar.

Ódysseifskviða

Ódysseifskviða fjallar um heimför og hrakningar Ódysseifs eftir Trójustríðið, um ævintýralegar slóðir Miðjarðarhafsins og alla leið í dauðaheim Hadesar. Hún lýsir guðlegum galdrakerlingum og íðilfögrum prinsessum, framhjáhaldi guða og trygglyndi hunda, skrímslum og vofum, baráttu hetja og skúrka sem að lokum hljóta makleg málagjöld.

Óður til lífsins

Skömminni verður að skila

Í tíu ár hafði eiginmaður Gisèle Pelicot byrlað henni lyf, nauðgað henni og boðið fjölda manna inn á heimili þeirra til að misnota hana. Hún varð heimsfræg þegar hún ákvað að réttarhöldin yfir eiginmanninum skyldu fara fram fyrir opnum tjöldum. Allir áttu að sjá hverjir glæpamennirnir voru og að skömmin væri þeirra.

Ókunnugt fólk

Áhrifamikil saga um brotna fjölskyldu og óuppgerða fortíð þar sem eldri hjón og uppkomin börn þeirra segja söguna hvert um sig. Síðan elsti sonurinn hvarf fyrir tuttugu árum hefur sorgin sundrað og þau hafa gengið hvert sína leið, ófær um að græða sárin, þar til helgina sem óvænt atvik neyðir þau til að horfast í augu og spegla sig hvert í öðru.

Óskráðar minningar mínar

Katia Mann, eiginkona þýska skáldjöfursins Thomasar Mann, varði ævinni í að skýla eiginmanni sínum fyrir umheiminum svo að hann gæti skrifað meistaraverk sín. „Í þessari fjölskyldu verður að vera einhver sem ekki skrifar,“ sagði Katia jafnan þegar hún var hvött til að skrifa endurminningar sínar. Á efri árum féllst hún loks á að segja ævisögu sína.

Pár Guðs

Finnur Magnússon lifir spennandi tíma og er frægastur Íslendinga á sinni tíð fyrir vísindastörf sín. Frægðarsól hans rís hátt en hrapar hraðar en nokkur halastjarna er hann ræður rúnagátuna miklu í Blekinge í Svíþjóð og skrifar þykka bók um það forna letur – sem reynist svo ekki annað en jökulristur á veðraðri klöpp.