Allar bækur

Síða 28 af 37

Skuggar af Kili

Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu. Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessarar sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.

Skugginn

Dögg er nýflutt í gamalt hús ásamt mömmu sinni, kærastanum hennar og dóttur hans – sem hún þekkir ekkert þótt þær séu báðar í Kvennó. Þegar stelpurnar verða sannfærðar um að reimt sé í íbúðinni neyðast þær þó til að snúa bökum saman og komast að því hvað draugurinn vill þeim. Brátt eru þær komnar á blóði drifna slóð látinna unglingsstúlkna.

Skugginn af fuglabúrinu

Í þéttofnum vef liggja flestir þræðir til gamals fjölbýlishúss þar sem búa ósköp venjulegar manneskjur eins og gamla konan sem ekur um á mosagrænum Landrover með ónýtan rafgeymi, skáksnillingurinn sem telur sig vera annan en stendur í þjóðskrá og vanafasti bókasafnsfræðingurinn sem þrjóskast við að rækta kartöflur. En látum ekki blekkjast.

Skúffuskáldið

Gunnar hefur alltaf dreymt um að skrifa bók, án þess þó að gera nokkuð í því. En nú getur hann ekki setið á sér lengur. Hann skráir sig í ritsmiðju fyrir skúffuskáld og segir engum frá. Textarnir spretta fram, þar á meðal ástarsaga um elskendur sem fá ekki að eigast. Hávær samviskan nagar Gunnar. Hefur hann ekkert betra við tímann að gera?

Skömmin var aldrei mín

Saga um að lifa af, rjúfa mynstur og finna leiðina til bata

Í þessari áhrifamiklu sjálfsævisögu rekur Hrund leið sína frá æsku, þar sem þögn, meðvirkni og áföll móta sjálfsmynd hennar, yfir í fullorðinsár þar sem hún ber sívaxandi innri byrði. Þegar áfengið verður leið til að deyfa það sem aldrei fékk að heita sínu rétta nafni neyðist hún loks til að horfast í augu við sjálfa sig og fortíðina.

Spæjarastofa Lalla og Maju Slökkviliðsráðgátan

Dularfullir eldsvoðar herja á Víkurbæ. Sem betur fer eru alls staðar slökkvitæki og annar öryggisbúnaður og allt fer vel. En af hverju hverfa verðmæti eftir að slökkviliðið kemur á staðinn? Spæjararnir Lalli og Maja einsetja sér að leysa ráðgátuna. Litmyndir á hverri opnu. Frábær bók fyrir þau sem vilja byrja að lesa sjálf.

Sóley og Fífa finna dreka

Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil ánægja sem fylgir því að hittast í sveitinni hjá ömmu og afa þar sem ævintýrin eru aldrei langt undan. Í bókinni efla stúlkurnar hugrekkið sitt og vináttu um leið og þær kynnast fuglum, blómum og öðrum spennandi fyrirbærum í náttúrunni.

Sólon og Dimma dúskur

Stjörnuslóðin

Sólon og Dimma Dúskur leita að uppáhaldsstjörnu Dimmu sem flaug óvænt til jarðar frá tunglinu. Vinirnir lenda í ýmsum ævintýrum og þurfa að nota ofurkraftana sína til að ferðast á milli ólíkra staða í leit að stjörnunni dýrmætu. – Skemmtileg saga með fallegum teikningum, hljóðum, forvitnilegum gátum og fjölbreyttum verkefnum fyrir ólíka aldurshópa.