Allar bækur

Síða 5 af 25

Dýpstu myrkur

Þegar lík finnst í hesthúsi gefst Helgu óvænt tækifæri til að leiða sína fyrstu rannsókn hjá ofbeldisbrotadeildinni. Til liðs við sig fær hún lögreglumann úr umferðardeildinni, hinn tröllvaxna og dula Bjarka. Smám saman verður þeim ljóst að þau leita kaldrifjaðs fjöldamorðingja og að tíminn til að bjarga næsta fórnarlambi er að renna frá þeim.

Eftirmáli

Framhald metsölubókarinnar P.s. Ég elska þig . Ástin lifir að eilífu! Sjö ár eru frá andláti Gerrys og sex ár síðan Holly las hinstu kveðjuna frá honum. Hún hefur haldið áfram með líf sitt en þegar systir hennar biður hana um að segja frá P.s. Ég elska þig-bréfunum í hlaðvarpsþætti lætur hún ófús undan. Hún vill síst af öllu rífa upp gö...

Eitraður sannleikur

Þegar uppistandarinn Lina Gyllenborg finnst látin á heimili sínu er Jonas kærasti hennar ásakaður um að hafa myrt hana. Hann lýsir yfir sakleysi sínu en bæði lögregla og almenningsálit telja hann sekan. Samt sem áður er hann sýknaður fyrir dómi. Fjórum árum síðar ræður Jonas réttarsálfræðinginn Rebeccu Lekman til að hjálpa sér að finna morðingjann.

Eitur í augum

Bergþóru bráðliggur á að gifta kornunga fósturdóttur sína og reynist ekki þurfa að leita langt eftir hentugum eiginmanni. Ráðahagurinn á eftir að bjarga orðstír margra en einnig vekja sorg og reiði – og áður en langt um líður finnst maður í andarslitrunum eftir að hafa verið byrlað eitur. Lokabindi þríleiksins um hina ráðsnjöll Bergþóru í Hvömmum.

Eldsins ógn

Skaftáreldar og móðuharðindin

Skaftáreldar og móðuharðindin eru mestu náttúruhamfarir sem hér hafa orðið á sögulegum tíma. Fimmtungur landsmanna dó og þúsundir fóru á vergang; straumar flóttafólks bárust vítt og breitt um landið, bústofn féll unnvörpum og hungursneyð geisaði. Þessir örlagatímar lifna á einstæðan hátt í meðförum þessa vinsæla höfundar.

Emoji Kennsla

Hvað þýðir þumall frá yfirmanninum? Af hverju er saklaus broskall orðinn passíf-agressífur og hvernig getur kúkurinn tryggt þér launahækkun? Bráðfyndin kennslubók í ritmáli nútímans sem brúar bilið milli kynslóða, jafnt á vinnustaðnum sem í fjölskylduspjallinu. Að lestri loknum verður þú reiprennandi í emoji köllum.

Endurminningar frá Eskifirði

Svipmyndir frá miðri síðustu öld

Á Eskifirði sleit Þorsteinn Skúlason barnsskónum. Þar átti hann heima frá fæðingu 1940 og þar til hann fluttist í höfuðstaðinn 1957. Í endurminningum sínum snýr hann aftur á æskuslóðirnar, rifjar upp gamla tíma og dregur upp skýra mynd og skemmtilega af mannlífinu á Eskifirði og Austurlandi um miðja síðustu öld og koma margir við sögu.

Enginn kom í dag

Það er ekki stórstaðarlegt á dvalarheimilum aldraðra. Valdimar er 84 ára, ekkill og á uppkomin börn sem hann sér sjaldan. Marga daga gerist fátt, Valdimar hittir fólkið, borðar, drekkur kaffi, spjallar, spurning hver dó í gær – skrifar í dagbókina og endar alla daga: Enginn kom í dag. En þegar Maggi refur dregur upp byssuna færist fjör í leikinn!

Evrópsku járnfákarnir

Saga evrópskra mótorhjóla á Íslandi

Mótorhjólið hefur í meira en öld verið tákn frelsis og ævintýraþrár. Um leið endurspeglar heillandi saga þess tækniframfarir og breytta tíma. Í þessari bók er rakin saga evrópskra mótorhjóla hér á landi – frá fyrstu hjólunum sem ruddu sér leið um íslenska vegi til þeirra fjölbreyttu gerða sem síðar urðu hluti af samfélaginu.

Ég vil ekki fara að hátta

Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans reynir að koma honum í rúmið orgar hann bara og ólmast. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann nefnilega fylgst með háttatíma dýranna. Sígild saga sem er nú loks fáanleg á ný.