Allar bækur

Síða 4 af 25

Dagar mínir í Morisaki-bókabúðinni

Þegar Takako missir í einu vetfangi kærastann, vinnuna og trúna á sjálfa sig, býðst henni óvænt skjól hjá frænda sínum í lítilli fornbókabúð í Tókýó. Jimbocho-hverfið í Tókýó iðar af lífi, þar flökta neonljós borgarinnar og angan af Ramen-núðlum liggur í loftinu. í Morisaki-bókabúðinni opnast annar heimur – kyrrlátur, hlýr og fullur af sögum.

Dauðakippir

Jack Reacher bjargar konu úr hremmingum úti í eyðimörkinni í Arizona. Hún reynist vera að leita að tvíburabróður sínum sem er lentur í klóm grimmúðugs glæpagengis. Reacher býðst til að leggja henni lið – enda hefur hann ekkert á móti dálítið vafasömum félagsskap. Tuttugasta og sjötta bókin í metsöluflokknum um harðjaxlinn Jack Reacher.

Deild Q Dauðar sálir syngja ekki

Skotheldur spennutryllir um barnslegt sakleysi og brostna drauma, ábyrgð og svik. Deild Q hjá lögreglunni kemst yfir hljóðupptöku sem varpar ljósi á gamalt morðmál. Óvæntar tengingar við ný dauðsföll beina athygli að leyndarmálum fortíðar og þekktum drengjakór. Bækurnar um Deild Q hafa farið sigurför um heiminn og hér hefst nýr kafli í þeirri sögu.

Dauðinn er bara myrkur

Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu. Odd Strange einkaspæjari býr í gömlu hjólhýsi nærri Malaga. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði í lögreglunni í Osló. Dag einn fær hann í fangið hryllilegt mál sem virðist tengjast fortíð hans.

Dauðinn og eyjan

Rithöfundur dregur sig í hlé á eyju undan ströndum Miðjarðarhafsins. Árum seinna kemur blaðakona til eyjunnar staðráðin í að ná viðtali við manninn. Sama dag finnst lík á ströndinni og yfirvöld loka eyjunni. Í ljós kemur að það eru ekki ritstörfin sem blaðakonan vill ræða, heldur leyndarmál fortíðar sem einhver virðist reiðubúinn að drepa fyrir.

Draumurinn um Ítalíu

Sumarævintýri sem hún aldrei gleymir

Eftir vinnulotu við lögfræðistörf í Wales tekur Lucia sér verðskuldað frí hjá afa sínum og ömmu á Suður-Ítalíu. Sólskinið, sítrónutrén og girnilegur matur ömmu hennar skapar gleðiríkar stundir en ýmislegt verður til þess að Lucia þarf að endurmeta hvað hún vill fá út úr lífinu. Ef þú ert að leita eftir hnyttni og hlýju er Jo Thomas þinn höfundur.