Allar bækur

Síða 31 af 37

Tímabundin - ástarsaga

Árið er 2033. Ríkisstjórnin hyggst leggja fram umdeilt frumvarp um að leyfa ófrjósemisaðgerðir á börnum. Magnea er þingmaður í stjórnarandstöðu og staðráðin í að beita sér af alefli gegn málinu. Á sama tíma eru blikur á lofti í einkalífinu. Tómas, eiginmaður hennar, er spendýrafræðingur sem glímir við erfiða drauga fortíðar.

Tímaflakkararnir

Saga heimsins, sögð af Seyðfjörð-fjölskyldunni

Komdu í tímaferðalag með Seyðfjörð-fjölskyldunni í þessu skemmtilega ævintýri. Þú þarft að hjálpa Stebba og fjölskyldunni hans að komast í næstu ormagöng. Villta vestrið, víkingar, faraóar, risaeðlur ... og svo ótalmargt fleira! Sagan eins og þú hefur aldrei upplifað hana áður!

Trúnaðartraust

Bresk kona drukknar í sundlaug við sumarbústað á vesturströnd Danmerkur. Var þetta slys – eða morð? Ef hún var myrt hver gat gerandinn verið? Afbrýðisöm systir hennar? Ósáttar vinkonur? Ástkær eiginmaður? Eða pabbi hennar sem átti í miklum fjárhagskröggum og þurfti á þeim fjármunum að halda sem líftrygging dóttur hans myndi færa honum?

Trönurnar fljúga suður

Hjartnæm metsölubók um víða veröld! Bo finnur að líf hans er að fjara út. Líkami hans er að gefa sig og kyrrlátt líf hans er aðeins rofið af daglegum heimsóknum heimaþjónustunnar. Hendur hans verða brátt of máttlitlar til að opna boxið dýrmæta með sjali eiginkonu hans, Frederiku, sem þjáist af alzheimer-sjúkdómnum, en sjalið ber enn ilm hennar.

Sturla Tvíburaveiðar

Regína og Litlavin eru eins ólíkar í útliti og hægt er. Auk þess ólst Regína upp hjá hertoganum í Normandí en Litlavin hjá vinnuhjúum á Íslandi. Á fjórtán ára afmælisdegi þeirra birtist dularfullt fólk hjá þeim báðum. Fólk sem er með drekapeð í fórum sínum og ætlar að – haltu þér fast – veiða þær. En af hverju? Hverjar eru þessar stelpur?

Töfraskólinn í Orkubóli og Árás Myrkrarskólans

Rétt handan við hulu Íslands leynist heimur töfra, dreka, trölla og skóla sem kennir galdur og seið. Myrkrið nálgast Orkuból og þar standa þrjár stelpur á krossgötum. Geta þær yfirstigið eigin erfiðleika og bjargað skólanum – eða mun Fröken Grárún breyta Orkubóli í grafhýsi? Fyrsta bókin í nýrri íslenskri bókaröð sem kemur skemmtilega á óvart.

UFO 202

Í tímans rás hafa geimverutilgátur byggst á hugmyndum um heimsóknir gesta utan okkar sólkerfis en nú er umræðan að breytast. Trúarleg heimsmynd mannsins er skoruð á hólm. Hulan milli þess andlega og efnislega þynnist hratt og efnisveruleikinn eins og við höfum upplifað hann verður annarlegri í augum okkar. Höfum við einhvern tíma verið ein?

Umrót

Þegar Rakel missir stjórnina á vel skipulögðu lífi sínu ákveður hún að fara í sjálfskipaða útlegð í Andalúsíu. Þar þarf hún að horfast í augu við sjálfa sig og drauga fortíðar sem hún hefur grafið djúpt. Rakel er áttavillt en smátt og smátt lærir hún að feta þröngar götur á framandi slóðum. Stærsta áskorun Rakelar er þó að kynnast sjálfri sér.

Undir fögru skinni

Það sem átti að vera hugguleg bústaðaferð breytist á síðustu stundu í útilegu í afskekktum dal. Eftir að myrkrið skellur á fara samskipti ferðafélaga að súrna. Brátt kemur í ljós að ekki er allt með felldu og óvíst er hver lifir nóttina af. Æsispennandi hrollvekja um nútímafólk andspænis óhaminni náttúru, þar sem margt býr í myrkrinu.

Undir þér jörðin

Þrír ljóðabálkar kallast á. Í Hundadögum er unnið með náttúrulýsingar með hægum en einbeittum stíganda. Í titilbálkinum vaknar ljóðmælandi við hljóðið í ör sem hæfir villigölt og kemst í tengingu við allt sem hann hefur reynt að forðast. Síðasti bálkurinn er huggunarljóð, óður til mennskunnar og vilja fólks til að hjálpa hvert öðru og heila.

Uppeldisbókin

Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar

Í bókinni er lýst hvernig börn læra frá unga aldri af samskiptum við foreldra sína og því fordæmi sem þeir gefa með eigin hegðun. Gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á færni sem foreldrar þurfa að hafa eða tileinka sér til að ýta undir æskilega hegðun barna sinna.