Allar bækur

Síða 13 af 38

Góða nótt

Hreyfiflipar til að opna og loka augum allra sem eru að fara að sofa.

Yndisleg bók til að skoða fyrir svefninn. Á kvöldin kemur tunglið fram og sendir okkur í draumalandið. Ssshhh! Nú eiga allir að fara að sofa. Notaðu hreyfiflipana til að opna og loka augum allra sem eru að fara að sofa. Eftir sömu verðlaunahöfunda og Húsið hennar ömmu, Húsið hans afa, Hræðileg gjöf, Hræðileg veisla og Hræðilegt hús....

Grænland og fólkið sem hvarf

Hvað varð af norrænu byggðinni á Grænlandi sem hvarf með dularfullum hætti fyrir 500 árum? Hér er reynt að ráða gátuna auk þess sem rýnt er í sögu landsins frá komu danskra nýlenduherra, mikilla þjóðfélagsbreytinga á 20. öld og svo umsvifum Bandaríkjanna eftir síðari heimsstyrjöld og fram á okkar daga. Aðgengilegt sagnfræðirit og ferðasaga í bland.

Grænmetisætan

Hin suður-kóreska Han Kang hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2024 fyrir „ákafan ljóðrænan prósa sem tekur á sögulegum áföllum og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins.“ Áður hafði hún m.a. hlotið Man Booker-verðlaunin árið 2016 fyrir Grænmetisætuna sem farið hefur sannkallaða sigurför um heiminn.

Gömlu íslensku jólafólin

Fróðleikur og ljótar sögur

Í gamla daga voru sagðar margar ljótar sögur um Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og jólaköttinn. Grýla hefur t.d. búið með sex ferlegum tröllkörlum og Leppalúði haldið framhjá kerlu sinni. Jólasveinarnir eru mun fleiri en þrettán og stundum var sagt að þeir fitnuðu af blótsyrðum. Flotnös og Lungnaslettir koma ekki lengur til byggða, sem betur fer.

Hafsjór af lykkjum

Prjón hannað út frá gömlum sjóarapeysum

Klassísk og falleg prjónabók með flíkum fyrir karla, konur og börn. Fjölmargar stílhreinar og tímalausar uppskriftir, flestar að peysum en einnig að ýmsum öðrum flíkum og fylgihlutum, til dæmis vesti, húfu, sjali og barnateppi, sem koma sér vel bæði á sjó og í landi. Flíkurnar eru í senn hentugar, hlýjar og fallegar.