Allar bækur

Síða 22 af 25

UFO 202

Í tímans rás hefur geimverutilgátan í sínum ótal myndum byggst á hugmyndum um heimsóknir gesta utan okkar sólkerfis en nú er umræðan að breytast. Gunnar Dan fjallar hér með frumlegum og grípandi hætti um fjölvíddarverur, fljúgandi furðuhluti og fyrirbæri, tengsl efnis við skammtaheiminn og upplausn hugmyndafræðilegra ramma.

Umrót

Þegar Rakel missir stjórnina á vel skipulögðu lífi sínu ákveður hún að fara í sjálfskipaða útlegð í Andalúsíu. Þar þarf hún að horfast í augu við sjálfa sig og drauga fortíðar sem hún hefur grafið djúpt. Rakel er áttavillt en smátt og smátt lærir hún að feta þröngar götur á framandi slóðum. Stærsta áskorun Rakelar er þó að kynnast sjálfri sér.

Undir fögru skinni

Það sem átti að vera hugguleg bústaðaferð breytist á síðustu stundu í útilegu í afskekktum dal. Eftir að myrkrið skellur á fara samskipti ferðafélaga að súrna. Brátt kemur í ljós að ekki er allt með felldu og óvíst er hver lifir nóttina af. Æsispennandi hrollvekja um nútímafólk andspænis óhaminni náttúru, þar sem margt býr í myrkrinu.

Undir þér jörðin

Þrír ljóðabálkar kallast á. Í Hundadagar er unnið með náttúrulýsingar með hægum en einbeittum stíganda. Í titilbálkinum vaknar ljóðmælandi við hljóðið í ör sem hæfir villigölt og kemst í tengingu við allt sem hann hefur reynt að forðast. Síðasti bálkurinn er huggunarljóð, óður til mennskunnar og vilja fólks til að hjálpa hvert öðru og heila.

Uppeldisbókin

Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar

Í bókinni er lýst hvernig börn læra frá unga aldri af samskiptum við foreldra sína og því fordæmi sem þeir gefa með eigin hegðun. Gefin eru gagnleg ráð, árangursríkum aðferðum er lýst og bent er á færni sem foreldrar þurfa að hafa eða tileinka sér til að ýta undir æskilega hegðun barna sinna.

Bardagakettir Upphaf spádómsins

1. hluti

Heimiliskötturinn Rósi þiggur boð um að verða hluti af gengi villikatta og læra að verða bardagaköttur. Hann fær nýtt nafn, lærir nýja siði og kynnist nýjum vinum. Hann eignast líka óvini og kemst að því að sumir kettir eru ekki hrifnir af því að heimilisköttur fái að verða bardagaköttur. Mun þessi hugrakki og hjartahreini köttur lenda á loppunum?

Uppreisn skordýranna

Kata könguló, Gummi geitungur, Flosi fiðrildi, Margeir maur og öll skordýrin vinir þeirra eru orðin þreytt á því hvað mennirnir eru grimmir og tillitslausir. Þeir kremja skordýrin og kasta í klósett, ryksuga og sprauta á þau eitri. Loks ákveða skordýrin að gera uppreisn og flytja til Surtseyjar. Hvað skyldi þá verða um mannfólkið?

Vanmáttug

Þegar konungurinn boðar til keppni til að sýna mátt elítanna – sem geta drepið með einni snertingu – verður Paedyn að finna leið til að komast lifandi út úr þessari lífshættulegu keppni, dulbúin sem elíta. Láttu heillast af fyrstu bókinni í þessum magnaða og rómantíska fantasíu-þríleik sem hefur farið sigurför um allan heiminn.

Vargöld

Þriðja bók

Metnaðarfull myndasaga um goð og menn á heiðnum tíma sem hefur ekki aðeins hlotið lof lesenda heldur einnig tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Reykjavíkurborgar. Þetta er lokakafli sögunnar. Vikar á óvænta endurfundi við ástina en Óðinn vill ekki leysa hann úr þjónustu sinni. Enda er heimurinn á heljarþröm.

Varkár

Varkár er verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin, en sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.