Allar bækur

Síða 3 af 25

Barnabíuklúbburinn

Vinkonurnar Kristín, Anna María, Klara og Heiða stofnuðu Barnapíuklúbbinn. En allt getur gerst þegar börn eru annars vegar. Hvort sem það eru úrillir smákrakkar, strangir foreldrar, stórir hundar, skuggalegir nágrannar, óþægileg leyndarmál eða að mæta í hús hjá ókunnugum þá tækla vinkonurnar það með stæl. Barnapíuklúbburinn loksins á íslensku!

Barnabók

Sigmundur Ernir er alinn upp á Syðri-Brekkunni á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma héldust fábreytni og nægjusemi í hendur og má segja að nýtni og sparsemi hafi verið höfuðdyggðir á heimilum alþýðufólks í bænum. Hér safnar skáldið góðkunna saman munnmælasögum sem eru í senn forkostulegar og gamansamar heimildir um horfinn tíma.

Birkilundur

Jónína er nýr íbúi í blokk eldri borgara þar sem hún kynnist litríku fólki á sama reki og endurnýjar jafnframt kynnin við gamlan kærasta frá æskuárunum. Eina andvökunótt verður henni litið út um gluggann og sér þá inn um glugga í næstu blokk að maður er að fremja alvarlegan glæp. Var kona myrt fyrir framan augun á Jónínu eða missýndist henni?