Allar bækur

Síða 33 af 37

Veiðistöng handa afa mínum

Sex meistaralega samdar sögur eftir kínverska Nóbelsskáldið Gao Xingjian. Sögurnar fjalla um hverfulleika ástar og lífs, vonir og ótta en ekki síst ásækni minninga, þar sem fortíðin verður ekki umflúin. Brugðið upp ljóðrænum myndum af mótum minninga og veruleika þar sem hið ósagða er fangað af listfengi skáldsins og innsæi listmálarans.

Veisla þrjú

LínLín bjargast úr bráðum háska og er komin á byrjunarreit á ný. Hvað hefur hún að lifa fyrir þegar flestallt sem hún hefur elskað er gengið henni úr greipum? Sjálfri sér til furðu finnur hún ólga innra með sér heitar tilfinningar; lífsþorsta, tilhlökkun, hrifningu. Funandi ástarsaga meistarahöfundar um rómantískt æði konu sem tókst ekki að deyja.

Velgjan

Í þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilfinningar sínar og skynjanir. Upphaflega átti verkið að heita La Melancholia eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á Velgjunni í staðinn.

Veraldarvafstur

Hér er sögð saga af farsælum ferli Sveins B. Valfells í viðskiptum en líka sagt frá manninum sjálfum og fjölskyldu. Sagan heldur áfram með syni hans, Sveini Valfells yngri. Saman fléttast sögur tveggja kynslóða en bókin er um leið aldarspegill sem varpar ljósi á ótrúlegar þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa á Íslandi frá upphafi tuttugustu aldar.

Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar Verkfæri í drottins hönd

Endurminningar Þórunnar Ástríðar Björnsdóttur ljósmóður

Handritið sem hér birtist var týnt en fannst fyrir tilviljun á Landsbókasafni. Endurminningar Þórunnar frá 1935 fjalla um æskuna í Skorradal, þjóðfélagsmál og dulræn efni en þó ekki síst köllun hennar, ljósmóðurstarfið. Einnig er prentuð dagbók sambýliskonu hennar, Guðlaugar Guðmundsdóttur, frá 1928–1929, sjaldgæf skrif óskólagenginnar alþýðukonu.

Versta vika sögunnar

Fimmtudagur

Hefur þú einhvern tíma átt slæma viku? Það hefur Jón Jónsson átt, og þetta er sú vika! Mánudagur var hörmulegur, þriðjudagur var hrikalegur, miðvikudagur var hræðilegur og núna er fimmtudagur. Hann er klæddur eins og trúður! Niðurlægður í vinsælasta sjónvarpsþætti landsins! Rænt af tveimur skúrkum?! Brúðkaup með klósettþema!

Vetrarbókin

Í gegnum myrkrið með goðum og vættum

Fróðleg og óvenjuleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Vilborg Davíðsdóttir rýnir hér í sagnaheim fyrri alda, þjóðtrú og þjóðhætti, í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum, keltneskum og norrænum, að gagni í glímunni við langan og strangan íslenskan vetur. Um leið spinnur hún þræði til nútímans í ævintýraferð gegnum myrkrið.

Vélstjórinn frá Aberdeen

Morðsaga byggð á sönnum atburðum. Átakanleg saga um hryllilegt morð sem framið var um borð í skoskum gufutogara í mynni Seyðisfjarðar árið 1894. Nýskipaður sýslumaður stóð frammi fyrir flóknustu morðgátu ævi sinnar. En var hægt að komast að sannleikanum? Þetta er spennandi glæpasaga en mun meira en einungis saga um glæp.

Við brúna og aðrar þýskar sögur

Í smásagnasafninu Við brúna og aðrar þýskar sögur er að finna verk eftir tuttugu og þrjá rithöfunda. Sögurnar komu út á 20. og 21. öld, flestar í Þýskalandi en tvær þeirra má rekja til þýskumælandi minnihlutahópa í Evrópu. Sögurnar veita áhugaverða og grípandi innsýn í þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem urðu í Þýskalandi á þessu tímabili.