Allar bækur

Síða 8 af 37

Ég kom til að gráta

Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brest­ir í hjónabandi? Eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig? Við erum öll að glíma við eitthvað, leita jafnvægis, eins og Jónatan sem fer á Snæfellsnes til að biðjast fyrirgefningar og skrifa sig frá erfiðum æskuárum. Áhrifamikil saga, skrifuð af næmi, einlægni og hárfínum húmor.

Ég og Milla Í pössun

Milla og Milla eru mættar aftur til leiks! Nú þarf Milla að vera í pössun hjá ömmu sinni sem er bæði mikil skvísa og nagli, og reynist eiga sér risastórt leyndarmál. Bumban á Línu kennara stækkar, Jónas bróðir er enn sami unglingurinn og Bassi er áfram krúttlegasti hundur í heimi! Sannkölluð lestrarskemmtun með myndum sem dansa á síðunum.

Ég vil ekki fara að hátta

Lassi er fimm ára og vill aldrei fara að hátta. Þegar mamma hans reynir að koma honum í rúmið orgar hann bara og ólmast. Kvöld eitt heimsækir hann Lottu gömlu. Hún leyfir honum að prófa gleraugun sín – og það eru sko engin venjuleg gleraugu! Með þeim getur hann nefnilega fylgst með háttatíma dýranna. Sígild saga sem er nú loks fáanleg á ný.

Ég vil ekki vera vinur þinn

Sorgarsaga úr íslenskri stjórnsýslu

„Þetta var hryllilegasti dagur lífs míns,” segir Pétur en þann dag var hann borinn þeim sökum að hafa áreitt samstarfskonu sína kynferðislega. Heimurinn fór á hvolf og hann skildi hvorki upp né niður. Í bókinni er lýst forkastanlegri málsmeðferð auk þess sem höfundur lýsir eigin sálarstríði. Upplýsingar eru á facebook síðu með nafni bókarinnar.

Farðu um jólin

Æsispennandi jóladagatal! Ísabella og Lúkas eru erkióvinir en neyðast til að vinna saman þegar mamma hennar og pabbi hans byrja að deita. Jólin nálgast og það síðasta sem þau vilja er að verja þeim saman. Þau beita því ýmsum brögðum til að reyna að fá foreldra sína til að hætta saman. En tekst þeim það áður en klukkurnar hringja inn jólin?

Fárviðrið

Þegar sæfarinn og ævintýramaðurinn Jem Rosco birtist óvænt í bænum Greystone í Devon vekur það óskipta athygli. En skömmu síðar hverfur hann sporlaust. Lík hans finnst í litlum báti undan Scully Cove, vík sem er sveipuð þjóðsagnakenndri dulúð. Rannsókn málsins reynist rannsóknarlögreglumanninum Matthew Venn erfið vegna fortíðar hans í Greystone.

Ferðalag Helenu

Hlý og uppörvandi skáldsaga um konu sem brýtur upp ævilangt lífsmynstur, um ást sem krefst ekki undirgefni og hugrekkið sem þarf til að lifa í sátt við sjálfa sig. Bókin varð metsölubók í Svíþjóð, enda ber hún öll höfundareinkenni Vivecu Sten, glæpasagnahöfundarins ástsæla, sem hér skrifar sína fyrstu ljúflestrarbók.

Ferðalag Sólu og heilun jarðar

Hvernig náttúran meðtekur góðvild

Sóla leggur af stað í töfrandi ferð um skóginn þar sem hún finnur tré sem kennir henni að hlusta á náttúruna. Smátt og smátt finnur hún að jörðin er lifandi og að allt líf tengist. Hlý og ljóðræn tvítyngd bók á íslensku og ensku sem býður börnum og þeim sem lesa með þeim að njóta náttúrunnar saman.

Fimmta barnið

Fjögur yndisleg börn, fallegt gamalt hús, ástríkir ættingjar og vinir – líf Harrietar og Davids Lovatt er hamingjusamt og gleðiríkt. En þegar fimmta barnið fæðist leggst dimmur skuggi yfir heimilislífið. Hinn ungi Ben er stór og ófrýnilegur, ofbeldisfullur og stjórnlaus. Áhrifarík skáldsaga eftir Nóbelsverðlaunahafann Doris Lessing.

Fjöltyngi á Íslandi

Inngangur að annarsmálsfræðum

Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, hefur um árabil rannsakað og gefið út rit um sambýli tungumála hjá einstaklingum og samfélögum. Bókin er inngangur að annarsmálsfræðum fyrir kennara, kennaranema og aðra sem vilja dýpka þekkingu sína á fjöltyngi og áhrifum þess á nám sívaxandi hóps fjöltyngdra ungmenna á Íslandi.