Allar bækur

Síða 6 af 25

Ferðalag Helenu

Helena er að undirbúa fimmtugsafmæli sitt og eiginmannsins þegar hún kemst að því að hann hefur haldið fram hjá henni. Hver er hún þegar hún er er ekki lengur eiginkona einhvers? Hlý og uppörvandi skáldsaga um konu sem brýtur upp ævilangt lífsmynstur, um ást sem krefst ekki undirgefni og hugrekkið sem þarf til að lifa í sátt við sjálfan sig.

Ferðalag Sólu og heilun jarðar

Hvernig náttúran meðtekur góðvild

Sóla leggur af stað í töfrandi ferð um skóginn þar sem hún finnur tré sem kennir henni að hlusta á náttúruna. Smátt og smátt finnur hún að jörðin er lifandi og að allt líf tengist. Hlý og ljóðræn tvítyngd bók á íslensku og ensku sem býður börnum og þeim sem lesa með þeim að njóta náttúrunnar saman.

Fleipur

sögur

Er ástæða til að leiðrétta heillandi konu sem heldur að maður sé Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur? Hvað gerist þegar sóprandíva í kirkjukór gerist talibani tónlistarinnar? Hvernig þekkti jólasveinninn litla héraskinnið í kvæðinu? Óvenjulegt og bráðskemmtilegt sagnasafn.

Fnæs

Hér birtast á mjög mörgum blaðsíðum fimm ár af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmála. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf. Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags sem er oft flókin en oft svo fyndin.

Frelsisbjarmar

Bandaríkin á öldinni okkar: Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis

Hér er fjallað um Bandaríkin á 21. öld, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Að hætti hússins fléttar höfundur eigin upplifanir inn í frásögnina. Bruce Springsteen kemur nokkuð við sögu og jafnvel Rocky er sóttur heim í þessu landi sem ávallt virðist geyma bæði það besta og það versta.

Fremst í fokki

Sól Hlíf unga og bláhærða gengur að eiga hinn áttræða prófessor, Dufþak Dolla, öllum til furðu, en hann ætlar henni stórt hlutverk í lífinu. Hún skal á Bessastaði, þrátt fyrir kókbotnagleraugu og hring í nefinu. Lokabók í seríu. Fyrri bækur eru: Bónorðin tíu, Innsti kroppur í búri og Fimm ára brandarinn.

Fuglamál

Brynja er sannfærð um að dóttir hennar sé andsetin. Ída hagar sér undarlega og á ósýnilegan vin. Eftir því sem áhyggjur Brynju aukast fara yfirnáttúrulegir atburðir að trufla veruleikaskynjun þeirra. Hafliði vinnur að myndlistarsýningu með hópi flóttamanna en Brynja leitar að skýringu á hegðun dóttur þeirra, og hvað það þýðir að vera foreldri.

Fullkomið hjónaband

Sarah Morgan er einn besti verjandi í Washington, DC. Í næstum tvö ár hefur Adam, eiginmaður hennar, haldið ástarsambandi sínu við Kelly Summers leyndu, en allt breytist þegar lík hennar finnst í sumarhúsi hjónanna og Adam er handtekinn grunaður um morðið. Þó að Adam sé sekur um að sofa hjá Kelly er hann þá líka sekur um að myrða hana?