Steikarbók Óskars
Ný útgáfa
Hér er á ferðinni löngu tímabær steikarhandbók fyrir allt áhugafólk um góðar nautasteikur. Byrjendur sem lengra komna.
Síða 29 af 37
Ný útgáfa
Hér er á ferðinni löngu tímabær steikarhandbók fyrir allt áhugafólk um góðar nautasteikur. Byrjendur sem lengra komna.
Það hefur aldrei verið tími hjá mömmu Steindísar til að stoppa við kastalann. En í þetta skipti hefur mamma lofað Steindísi að þær ætli að skoða hann saman. Steindís er mjög spennt fyrir að skoða þennan alvöru kastala og uppgötva hvað leynist þar inni.
Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi
Opinber skjalasöfn gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau varðveita minni þjóðar, tryggja réttindi borgaranna og hag stjórnsýslunnar. Þjóðskjalasafn er framkvæmdaraðili skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi. Í bókinni er fjallað um þróun langtímavörslu skjala, eftirlitshlutverk Þjóðskjalasafns og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni.
Börnin elska Bjössa Bras. Litrík bók, ríkulega myndskreytt og með flipum til að lyfta. Hönnuð til málörvunar og að venja börn til bókar.
Tóbías Mar hefur alist upp um borð í sjóræningjaskipinu Söng sírenunnar undir verndarvæng Sigurmars Sjólfs skipstjóra. Dag einn veita herskip keisaraveldisins Sírenunni grimmilega eftirför. Þá kemst Tóbías óvænt að því að í honum búa magnaðir kraftar sem tengjast hafinu og við tekur mikil hættuför um nýja og framandi heima.
Hárbeitt og spennuþrungin saga um óbærilegan missi og einsemd – og síðbúna, grimmilega hefnd. Vopnasali er skotinn á götu í Minneapolis og lögreglan kemst fljótt á slóð byssumannsins en þegar hann lætur til skarar skríða á ný fer Bob Oz lögreglumann að gruna að einhver ósögð saga liggi að baki. Frábærlega fléttuð hrollvekja frá meistara Jo Nesbø.
Í þessari níundu bók sinni rekur Þórhallur Heimisson sögu, þróun og samsetningu Biblíunnar og texta hennar, allt frá Egyptalandi hinu forna til Biblíuþýðinga dagsins í dag. Þetta er spennandi og stórbrotin saga um mikilvæga sögulega þætti sem snerta alla. Hér er fjallað um Biblíuna sem heild og hvernig hún varð til.
Júlíana Jónsdóttir var fyrst íslenskra kvenna til þess að fá gefna út bók eftir sig, ljóðabókina Stúlku sem kom út 1876. Í þessari 150 ára afmælisútgáfu koma báðar ljóðabækur Júlíönu út í einu bindi. Ljóðin bera aldurinn vel og vitna um leiftrandi gáfur, seiglu og skopskyn höfundar sem hlaut litla skólagöngu og var vinnukona frá ungaaldri.
Ný útgáfa af stærðfræðibókum Gísla Bachmann og Helgu Björnsdóttur sem komið hafa út á undanförnum árum og ætlaðar eru nemendum á 3. þrepi í framhaldsskóla.
Í þessari bráðfyndnu og furðulegu sögu slást lesendur í för með félögunum Jesse og Lee. Leið þeirra liggur frá hriplekum forstofum í San Francisco til klettaveggja Big Sur þar sem lífið snýst um froskakvak, vináttu, ódýr vín, blekkingar, hamingju og leitina eilífu að tilgangi lífsins.
Matreiðslubók frá hafsbrúninni
Hvað er ljúfara en sumarblíða í sænska skerjagarðinum? Einstök matreiðslubók, glæsilega myndskreytt, þar sem metsöluhöfundurinn Viveca Sten reiðir fram ómótstæðilega rétti en bregður jafnframt upp lifandi svipmyndum og sögum af lífi fólksins í sænska skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm.
Allý er búin með fyrsta árið í menntaskóla og margt hefur breyst í lífi hennar. Nýir vinir, vandamál heima fyrir og í ástarlífinu og pabbi hennar ákveður að senda hana í sveit. Allý er staðráðin í að gera vistina erfiða fyrir alla en eftir því sem líður á sumarið gerir hún sér grein fyrir að hún er að falla fyrir Degi sem vinnur á bænum.
Það er fyrsti desember og amma hefur gefið Katrínu girnilegt súkkulaðidagatal. Hún má bara opna einn glugga á dag, en það er erfiðara en hún hélt að standast freistinguna. Hlý og skemmtileg saga um vináttu, freistingar og lítil mistök – og um hugrekkið sem stundum þarf til að segja sannleikann.
Svanvængjuð þrá er áttunda ljóðabók metsöluhöfundarins Valdimars Tómassonar. Hér er ort um brostnar vonir, sorg og tilgangsleysi á einstaklega næman og fínlegan hátt. Formið sækir Valdimar til þríhendunnar en kveður þó með sínu lagi.
Lögreglumaðurinn Helgi Reykdal er á leið á Litla-Hraun ásamt tveimur kollegum. Framundan er mesta raun sem hann hefur ratað í. Um leið syrgir hann dauða Anítu, unnustu sinnar, sem Bergþóra, fyrrum sambýliskona hans, varð völd að. Og samhliða reynir hann að grafast fyrir um hvað varð um forvera hans í starfi – Huldu Hermannsdóttur.
Rósa flytur ásamt írskum eiginmanni sínum í frumskóginn á Kyrrahafsströnd Kólumbíu. Þegar eiginmaðurinn tekur sér ferð á hendur til næstu borgar er Rósa ein í hálfköruðu, hurðarlausu húsi. Regnskógarparadísin við ströndina breytist smám saman í martröð því ógnir leynast á hverju strái: hættuleg dýr, háskalegur gróður og vafasamir nágrannar.
Litróf birtunnar – um list brautryðjanda
Svavar Guðnason kom eins og stormsveipur inn í íslenskt listalíf í ágúst 1945 eftir langa dvöl í Danmörku með sýningu sinni í Listamannaskálanum. Þar ruddi hann óhlutbundinni myndlist braut á Íslandi. Svavar átti einnig þátt í því að móta danska – og evrópska – listasögu með hópnum er síðar varð þekktur sem Cobra-hreyfingin.
Í hjólhýsi finnst lík manns sem hefur verið limlestur af ólýsanlegri grimmd. Í næsta herbergi sefur hinn 17 ára gamli Hugo Sand. Hann þjáist af skelfilegum martröðum, gengur í svefni – og segist ekki hafa hugmynd um hvað átti sér stað þessa nótt. Lögregluforinginn Joona Linna leitar til dáleiðara í von um að komast að sannleikanum.