Allar bækur

Síða 27 af 37

Síðasta fiðrildið

Ljóð frá Gaza

Nima Hasan er palestínskt skáld og rithöfundur. Hún er fædd 1980 í Rafah á Gazaströndinni, þar sem hún hefur búið alla ævi. Eftir að hafa hrakist þaðan á brott mörgum sinnum er hún nú búsett í tjaldbúðum í Deir al-Balah. Þetta úrval kom fyrst út á sænsku fyrir ári síðan. „Mikilvægasta lesning haustsins,“ var skrifað í dómi í Dagens Nyheter.

Síðasti dagurinn

Þegar Matthildur vaknar 10. nóvember 2023 óttast hún það versta. Jarðskjálftar hafa skekið heimabæ hennar dögum saman og eldgos vofir yfir. Matthildur reynir að lifa eðlilegu lífi en áður en dagurinn er liðinn hefur fjölskyldan flúið bæinn í ofboði. Sönn saga um náttúruhamfarirnar í Grindavík og eftirleik þeirra sem hlaut Sólfaxa-verðlaunin 2026.

Síðasti leikurinn

Kim stendur frammi fyrir einum miskunnarlausasta morðingja sem hún hefur nokkru sinni mætt. Mögulegar vísbendingar skipta hundruðum, og syrgjandi systirin neitar að tala við þau. Ómótstæðileg spennusaga frá metsöluhöfundinum Angelu Marsons þar sem hún kannar dökku hliðarnar á lífi undrabarna. Saga sem grípur mann heljartökum.

Síðasti spellvirkinn

Saga dansks andspyrnumanns

Nasistar héldu dönsku þjóðinni í heljargreipum eftir hernám þeirra árið 1940. Hér er sögu spellvirkjans Ejlers Borch (f. 1925) fléttað saman við frásögn af dönsku andspyrnunni og Gestapó. Útkoman er spennandi og persónuleg frásögn, byggð á viðtölum við Ejler og fjölskyldu hans og umfangsmikilli heimildavinnu.

Skaðræðisskepnur

Einu sinni var ...

Þegar Gunnar lendir enn einu sinni í veseni í skólanum ákveða foreldrar hans að senda hann í sveit. Á bænum Steini býr stórskrýtin fjölskylda, óþolandi köttur og beljur sem hætta ekki að skíta. En eitthvað leynist í sveitinni. Eitthvað hættulegt sem felur sig í hrauninu og skilur eftir sig risastór fótspor. Fyrsta bókin í æsispennandi bókaflokki!

Skattland

Valdstjórn á Íslandi 1281-1551

Fjallað er um átakasögu íslenskra stjórnmála frá lögtöku Jónsbókar 1281 til siðbreytingarinnar 1551. Hvernig þróaðist konungsvaldið á Íslandi? Togstreita milli konungs, Alþingis og embættismanna setti mark sitt á tímabilið. Íslendingar héldu fast í forn réttindi og lög, en starf konungsfulltrúa gat verið bæði vandasamt og hættulegt.

Skepnufólk

Eldáin rennur niður dalinn eins og þráður í gegnum líf sveitunganna. En það er þungi í straumhljóðinu. Æskuvinirnir í dalnum eru bornir og barnfæddir með bændablóð í æðum og trúa á sauðkindina öðru fremur. Enginn þó meira en Ásta sem kann betur við skepnurnar en mannfólkið.

Múmínálfarnir Skoðum vitann

Fylgdu múmínsnáðanum sem rekur dularfulla slóð um allan vitann. Á leiðinni þarf að kanna öll herbergin, gá á bak við hurðir og inn í skápa. Hvar eru múmínmamma og múmínpabbi eiginlega? Skoðum vitann er bráðskemmtileg saga, kjörin fyrir alla unga múmínvini. Hér er fjölmargt áhugavert að skoða og finna!

Skrílmálið

index

Líkt og oft áður samþættir höfundur skáldskap, sagnaminni, hugmyndir og þjóðfræðibrot. Af fundvísi dregur hann fram úr skúmaskotum íslenskrar ritmenningar furðulegustu staðreyndir og setur þær í samhengi eða tengir við óskyld atvik, lyftir þeim á stall eða veltir úr sessi, oftar en ekki með gamansömu ívafi.