Allar bækur

Síða 34 af 37

Villistrákarnir

„Hvað étur peningavélin? Hún étur æsku, frjálsræði, lífmagn, fegurð, og umfram allt, étur hún sköpunarmátt. Hún étur gæði og skítur magni.“ – William Burroughs. Í þessari frægu bók segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinsegin ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.

Vísur Svantes

Saga í söngvum

Þessi stórskemmtilega bók eftir danska skáldið, rithöfundinn og tónlistarmanninn Benny Andersen fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Verkið kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku, bæði í bókarformi og á hljómplötu, á aldarafmæli söguhetjunnar.

Von frá Brooklyn

Baráttukonan Hope Knútsson fluttist búferlum frá Bandaríkjunum til Íslands árið 1974. Fimm árum áður hafði hún komist í kynni við land og þjóð þegar hún hafði viðkomu á Íslandi á leið sinni til Evrópu. Þetta hafði afdrifaríkar afleiðingar. Í þessari bók segir frá hvernig Hope farnaðist hér á landi og hvaða áhrif hún hefur haft á íslenskt samf...

Vorblót

Vigdís Magnúsdóttir hefur gefist upp á doktorsnámi í heimspeki og ákveður að hasla sér völl í hugleiðslu og öðrum andlegum málefnum. Hún auglýsir helgarnámskeið í ríkmannlegri villu fyrir utan Hveragerði þar sem kynna á „fjölbreyttar leiðir til að öðlast innri ró og næra andann“. Allt gengur að óskum – þangað til framið er morð.

Ævintýri Væb Væb finnur taktinn

Væb-bræður ætla að stofna hljómsveit. Það hefði átt að vera auðvelt en er það alls ekki. Þegar þeir rekast á dularfulla hljóðvél og fara að spila fer allt úr böndum. Áður en þeir vita af eru Litli Væb, Stóri Væb og Monkí komnir inn í heim þar sem tónlist getur vakið öfl sem enginn ræður við. Þeir verða að finna taktinn áður en það verður um seinan.

Yesteryear

Þar sem fortíðin mætir raunveruleikanum

Natalie lifir fullkomnu, hefðbundnu lífi á býlinu Yesteryear – og milljónir fylgjenda eru grænir af öfund. Hvað með það þótt barnfóstrur og framleiðendur leynist á bak við tjöldin? Kolsvört kómedía sem tekst á við hefðir, frægð, trú og það hvernig kvenleikinn hefur verið mótaður og sviðsettur í gegnum tíðina. „Stærsta bók ársins“ / The New...

Yfirrétturinn á Íslandi: Dómar og skjöl VI. 1747–1758

Fjölbreytt mál komu fyrir réttinn en þar á meðal eru vörusvik kaupmanna, fjárnám á heimili sýslumanns og spilling embættismanna. Systkinin Sunnefa og Jón Jónsbörn ásökuðu sýslumanninn Hans Wium um að hafa dæmt sig til dauða fyrir sifjaspell vegna barns sem hann hefði sjálfur getið Sunnefu í varðhaldi. Skjöl málsins birtast hér í fyrsta sinn.