Allar bækur

Síða 11 af 37

Guli hundurinn

Í vindasömum strandbæ að nafni Concarneau særist vínkaupmaður nokkur hættulega í skotárás. Það hrindir af stað röð undarlegra atburða og brátt grípur um sig mikill ótti í bænum. Svo virðist sem einhver ætli sér að ráða alla áhrifamenn bæjarins af dögum. Maigret lögregluforingi tekst á við rannókn málsins sem leiðir í óvæntar áttir.

Hafið

Síðasta víðerni jarðar

Hvernig er hægt að bjarga hafinu og þar með plánetunni okkar? Í þessari bók fjallar Sir David Attenborough ásamt Colin Butfield um hafið, sem mótar landið sem við búum á, stýrir loftslagi okkar og skapar loftið sem við öndum að okkur. Attenborough fagnaði 100 ára afmæli á árinu. Verkið byggir á ævistarfi hans og er vonarneisti fyrir framtíðina.

Hallgerðarsaga

Hallgerður langbrók hefur lifað með þjóðinni í þúsund ár. Hefur hún fengið harða dóma fyrir að standa ekki með manni sínum, Gunnari á Hlíðarenda, á ögurstundu. Í þessari bók fær hún harðan kinnhest þar sem Rannveig, móðir Gunnars, segir söguna. Óhætt er að segja að Rannveigu sé í nöp við tengdadóttur sína og er þá vægt til orða tekið.

Handbók fyrir ofurhetjur - Ofurskúrkar

Bók 11

Lísa trúir þessu varla: Amma og Karólína eru líka ofurhetjur! Það voru þær sem sömdu Handbók fyrir ofurhetjur! En áður en hún nær að spyrja þær út í þetta er handbókinni stolið! Nú verður hún að finna hana - ef bókin fellur í rangar hendur gæti það haft hræðilegar afleiðingar! Á sama tíma fær Wolfgang fréttir sem munu gjörbreyta lífi ha...

Harðindi

Steinn leggur ríðandi af stað úr bænum og ætlar aldrei að snúa aftur. Hann hefur misst trú á framtíðina eftir að lífið í landinu fór snarversnandi á aðeins örfáum árum. Hrakinn og sár er hann á mörkum þess að gefast upp þegar loks rofar til. Harðindi er spennandi og áleitin frásögn af ferðalagi manns og merar á nöturlegum tímum.

Hartman stórverslunin

Loforð í ljósaskiptunum

Eftir stormasöm ár í London snýr Vera Hartman aftur heim til Stokkhólms til að sanna að hún eigi heima í fjölskyldufyrirtækinu – hinni víðfrægu Hartman-stórverslun. Við heimkomuna kemst hún að því að amma hennar hefur tekið upp samningaviðræður um yfirtöku við Elias Johansson, framkvæmdastjóra lágvöruverðsverslunar sem nýtur mikilla vinsælda.

Hauststormur

Kvöldið sem Ágúst Strindberg flytur í lítinn bæ á vesturströnd Svíþjóðar skellur á mikill stormur og vinsæll grunnskólakennari í bænum hverfur sporlaust. Hvað kom fyrir Agnesi? Hvernig tengist hvarfið húsinu þar sem Ágúst býr? Ný glæpasagnasería frá einum vinsælasta spennusagnahöfundi Svíþjóðar. Æsispennandi atburðarás og óvæntar vendingar.