Ódysseifskviða
Ódysseifskviða fjallar um heimför og hrakningar Ódysseifs eftir Trjójustríðið, um ævintýralegar slóðir Miðjarðarhafsins og alla leið í dauðaheim Hadesar. Hún lýsir guðlegum galdrakerlingum og íðilfögrum prinsessum, framhjáhaldi guða og trygglyndi hunda, skrímslum og vofum, baráttu hetja og skúrka sem að lokum hljóta makleg málagjöld.